Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.04.2018, Síða 33

Læknablaðið - 01.04.2018, Síða 33
LÆKNAblaðið 2018/104 193 Ú R P E N N A S T J Ó R N A R M A N N A L Í Skipulag og starfsemi LÍ á tímamótum Í pistlunum Úr penna stjórnarmanna LÍ birta þeir sínar eigin skoðanir en ekki félagsins. Reynir Arngrímsson formaður Björn Gunnarsson gjaldkeri Guðrún Ása Björnsdóttir Hjalti Már Þórisson Jóhanna Ósk Jensdóttir Magdalena Ásgeirsdóttir ritari María Soffía Gottfreðsdóttir Ólafur Ó. Guðmundsson Stjórn Læknafélags Íslands Læknafélag Íslands (LÍ) er heildarsamtök lækna og samkvæmt nýja skipulaginu velja félagsmenn sér aðildarfélag innan þess. Skipulags- breytingarnar sem samþykktar voru á síðasta aðalfundi félagsins hafa í för með sér breytingar á félagsaðildinni sem vert er að vekja athygli á. Einnig er kominn tími til að fara í stefnumótunarvinnu og ræða hlutverk félagsins og sameiginlega stefnu. Hér til hægri eru sett fram á myndrænan hátt drög að skipu- og starfsemisriti til að sýna helstu þætti í starfi félagsins. Þar eru einnig nýir þættir sem ég tel rétt að tekin sé afstaða til á næstunni, svo sem tillaga að kjararáði eða kjaranefnd. Breytingarnar taka ekki að fullu gildi fyrr en í haust á næsta aðalfundi þegar aðildarfélögin hafa gengið frá breytingum á sínum lögum og formenn þeirra og meðstjórnendur setjast í stjórn LÍ. LÍ stéttarfélag Í dag er kjarnastarfsemi LÍ tengd stéttarfélagsmálum. Gerð kjara- samnings og að standa vörð um réttindi lækna gagnvart heilbrigðis- stofnunum í víðasta skilningi. Umfang réttindagæslu lækna er mikið og mun meira en flestir gera sér grein fyrir. Þá eru Orlofssjóður og Fjölskyldu- og styrkarstjóður lækna hluti af kjarasamningsbundn- um réttindum. Hér er varpað fram þeirri hugmynd að auk samn- inganefndar verði komið á fót kjararáði eða kjaranefnd sem hafi það hlutverk að rýna í launaþróun í landinu og afla þannig gagna og undirbúa næstu kjaraviðræður á hverjum tíma. LÍ fagfélag Fræðslustofnun lækna (FS) hefur gegnt hlutverki fagdeildar félagsins með sérstakri stofnskrá. Það eru fleiri þættir í starfi LÍ sem flokkast undir faglega hlutann þegar grannt er skoðað. Á þessum tímamótum er rétt að mínu mati að hefja umræður um til dæmis nánara samstarf LÍ og sérgreinafélaganna sem núna standa utan heildarsamtakanna og samskiptin við þau eru ekki skilgreind sérstaklega í lögum LÍ. Málefni og staða svæðafélaga sem hafa haldið uppi öflugu fræðslu- starfi á sínum heimasvæðum er annað sem þarf að skoða. Má þar nefna Læknafélag Akureyrar sem var svæðafélag og þar með aðildar- félag að LÍ en er það ekki lengur eftir skipulagsbreytinguna. Útgáfa Læknablaðsins er þriðji hlutinn sem vert er að nefna. Samstarf þessara aðila þarf að skoða og kanna möguleika á nánari tengslum. Erlent samstarf LÍ hefur fyrst og fremst verið á vettvangi Norræna læknaráðsins, Alþjóðasamtaka lækna (World Medical Association, WMA), Fastanefndar Evrópsku læknafélaganna í Brussel (CPME) og nú aftur nýlega á vettvangi Samtaka sérgreinafélaga Evrópu (UEMS). Hlutverk siðanefndar og siðfræðiráðs er skilgreint í lögum LÍ og breyttist ekki við síðustu endurskoðun. Félagsmenn sem látið hafa af störfum hafa með sér félagsskap, Öldungadeild lækna, og ekki verður vikist undan að ræða málefni þeirra eins og fram hafa komið óskir um. Til að halda öllu til haga er einnig rétt að benda á Félag áhugamanna um sögu læknisfræðinnar (FÁSL), sem reyndar er eina félagið þar sem aðrir en læknar geta orðið félagsmenn, en varðveisla sögunnar er mikilvæg eins og gefur að skilja á þessum tímamótum. Til framtíðar LÍ þarf að halda áfram þeirri vegferð sem lagt var í með lagabreyting- um á síðasta aðalfundi. Á næstunni mun LÍ bjóða formönnum að- ildar- og sérgreinafélaga til viðræðna um áframhald innleiðingar á breyttu skipulagi til að skýra nánar hvað í þeim felst. Vonast er til þess að þá skýrist línur sérstaklega varðandi uppbyggingu faglega þáttarins í starfi LÍ í samstarfi við sérgreinafélögin. Jafnframt verði horft til stefnumótunar til framtíðar með áherslu á sameiginlega hagsmuni allra lækna. Reynir Arngrímsson erfðalæknir formaður Læknafélags Íslands reynir@lis.is UTANRÍKISNEFND ORÐANEFND ORLOFSSJÓÐUR FOSL SAMNINGANEFND KJARARÁÐ LÖGFRÆÐI/LAGANEFND RÁÐGJÖF SVÆÐA- OG SÉRGR.FÉLÖG SIÐFRÆÐIRÁÐ/SIÐANEFND FRÆÐSLUSTOFNUN LÆKNABLAÐIÐ LÆKNAFÉLAG ÍSLANDS FRAMKVÆMDASTJÓRN ÖLDUNGADEILD FÁSL Nýtt skipurit LÍ.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.