Læknablaðið - 01.04.2018, Síða 52
212 LÆKNAblaðið 2018/104
Krabbameinsfélag Íslands hefur nú
endurnýjað að stórum hluta tækjabúnað
Leitarstöðvarinnar til skipulegrar leitar
að brjóstakrabbameini. Safnað var fyrir
tækjunum í Bleiku slaufunni 2016. Alls
söfnuðust 132 milljónir í átakinu sem
runnu óskiptar til tækjakaupanna. Endur-
nýjunin gerist í tveimur áföngum og hafa
hópleitartæki nú verið uppfærð. „Ávinn-
ingurinn af endurnýjuðum tækjabúnaði er
meðal annars minni geislun og óþægindi
við myndatökur, meiri hraði í myndatöku,
nákvæmari skjáir sem bæta greiningar-
möguleika, hagræðing vegna lægri bilana-
tíðni og sparnaður við viðhald tækjanna,“
segir í tilkynningu frá félaginu.
„Þetta er til mikilla bóta og eykur
gæðin í starfi okkar í leit að brjóstakrabba-
meini,” segir Magnús Baldvinsson, röng-
tenlæknir og yfirlæknir á Leitarstöðinni.
„Þessi endurnýjun auðveldar mjög alla
vinnu okkar og fullnægir nú þeim kröf-
um sem gerðar eru fyrir slíka starfsemi,
bæði varðandi gesti Leitarstöðvarinnar og
starfsfólk hennar,“ bætir hann við.
„Hér er um mikið framfaraskref
að ræða og afar ánægjulegt að hægt
sé að styðja leitarstarfið með þessum
hætti,” segir Halla Þorvaldsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins og
segir jafnframt að Bleika slaufan njóti
mikillar velvildar meðal landsmanna enda
sjáist það á afgerandi hátt hjá Krabba-
meinsfélaginu hve miklu er hægt að áorka
með dyggum stuðningi almennings.
Í þessum fyrri áfanga voru hópleitar-
tæki uppfærð, en einnig tölvu- og hug-
búnaður sem notaður er við hópleitina
ásamt hugbúnaði til geymslu og skoðunar
á myndum. Einnig hafa nýir skjáir sem
notaðir eru til greiningar á röntgenmynd-
um verið endurnýjaðir, en þeir búa yfir
stóraukinni upplausn og fleiri greiningar-
möguleikum sem auðvelda vinnu við
greiningar á brjóstakrabbameini. Í seinni
áfanganum verða tæki til sérskoðana
uppfærð og keypt ný tæki sem innihalda
möguleika til þrívíddargreiningar, mynda-
töku með skuggaefni og nýrri tækni við
sýnatöku úr meinum. Einnig verða keypt
ómtæki til notkunar við sérskoðanir og
hugbúnaður fyrir boðun uppfærður.
Ný tæki á Leitarstöð Krabbameins-
félagsins fyrir 132 milljónir króna
■ ■ ■ Magnús Hlynur Hreiðarsson
Á myndinni eru frá vinstri: Halla
Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri
Krabbameinsfélagsins, Magnús Baldvins-
son, röntgenlæknir og yfirlæknir á Leitar-
stöðinni og Guðrún Birgisdóttir, deildar-
stjóri á röntgendeild Leitarstöðvar við eitt
af nýju tækjunum.
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
Ný stjórn FAL
Stjórn Félags almennra læknra hefur
verið skipuð. Hún er sem hér segir:
Formaður: Guðrún Ása Björnsdóttir,
gjaldkeri: Jón Kristinn Nielsen,
ritari: Guðrún Arna Jóhannsdóttir.
Meðstjórnendur eru: Agnar Hafliði
Andrésson, Katrín Hjaltadóttir,
Ragnhildur Hauksdóttir, Berglind
Bergmann, Stefán Þórsson, Perla
Steinsdóttir, Valgerður Bjarnadóttir
(6. árs læknanemi) og Árni Johnsen
(5. árs læknanemi og formaður FL).