Læknablaðið - 01.07.2018, Síða 14
R A N N S Ó K N
338 LÆKNAblaðið 2018/104
daga dánartíðni kvenna 1,3% samanborið við 1,4% hjá körlum
(p=1). Heldur fleiri konur gengust undir neyðaraðgerð, eða 6% bor-
ið saman við 4% karla. Dánartíðni þeirra kvenna innan 30 daga frá
aðgerð var 30% borið saman við 19% hjá körlum en munurinn var
ekki marktækur (p=0,3).
Í töflu IVa eru sýndir forspárþættir dauða innan 30 daga frá
aðgerð en helstu sjálfstæðu áhættuþættirnir fyrir dauða voru
langvinn nýrnabilun, hjartabilun og hærri aldur. Kvenkyn
reyndist hins vegar ekki sjálfstæður forspárþáttur dauða innan 30
daga (OR 1,00; 95%-ÖB: 0,98-1,01, p=0,5).
Lifun
Mynd 1a sýnir heildarlifun sjúklinga eftir aðgerð. Einu ári eftir að-
gerð voru 95% (95%-ÖB: 93-98) kvenna á lífi borið saman við 97%
(95%-ÖB: 96-98) karla og var munurinn ekki marktækur (p=0,2).
Ekki reyndist heldur marktækur munur á lifun 5 árum eftir að-
gerð, eða 87% (95%-ÖB: 83-91) hjá konum borið saman við 90%
(95%-ÖB: 89-92) hjá körlum (p=0,2).
Síðkomnir fylgikvillar
Á mynd 1b sést tíðni MACCE en einu ári eftir aðgerð var hún
8% hjá báðum kynjum (p=0,2). Fimm árum eftir aðgerð var tíðni
MACCE ívið hærri hjá konum, eða 21% borið saman við 19% hjá
körlum, án þess þó að munurinn væri marktækur (p=0,3). Ein kona
(0,3%) og 7 karlmenn (0,4%) þurftu á endurhjáveituaðgerð að halda
á eftirfylgdartímanum. Heildartíðni kransæðavíkkunar eftir að-
gerð var 7% hjá báðum kynjum.
Í töflu IVb eru sýndir forspárþættir verri lifunar en þeir voru
hærri aldur, hjartabilun, langvinn nýrnabilun og sykursýki. Kven-
kyn reyndist hins vegar ekki sjálfstæður forspárþáttur síðri lifun-
ar (HR 1,10; 95%-ÖB: 0,83-1,45, p=0,5).
Umræður
Þessi rannsókn náði til allra sjúklinga hjá heilli þjóð sem gengust
undir kransæðahjáveitu á 13 ára tímabili. Ekki reyndist marktæk-
ur munur á horfum eftir kyni, hvort sem litið er til fylgikvilla,
30 daga dánartíðni eða lifunar. Þetta eru mikilvægar upplýsingar
fyrir þá sem koma að meðferð kransæðasjúkdóms hér á landi, en
þó sérstaklega fyrir þau hundruð kvenna sem gengist hafa undir
kransæðahjáveitu á þeim rúmu þremur áratugum sem þessar að-
gerðir hafa verið framkvæmdar hérlendis.26
Hlutfall kvenna sem gengust undir kransæðahjáveitu á rann-
sóknartímabilinu var 18% sem er heldur lægra en í erlendum
rannsóknum þar sem það er yfirleitt á bilinu 22-30%.8-12 Skýringin
á þessu lága hlutfalli kvenna hérlendis liggur ekki fyrir en rann-
sókn á árangri kransæðavíkkana á Íslandi á árunum 1987-1998
sýndi einnig lágt hlutfall kvenna, sem þó jókst úr 19% í 25% allra
víkkana á tímabilinu.27 Spurningin er hvort konum með alvar-
legan kransæðasjúkdóm sé síður vísað í kransæðahjáveitu hér á
landi. Í nýlegri rannsókn á rúmlega 100.000 sjúklingum sem fóru í
kransæðamyndtöku vegna bráðs kransæðasjúkdóms í Svíþjóð og
0.4
0.6
0.8
1.0
0 30 60 90 120
Mánuðir frá aðgerð
Li
fu
n
án
M
AC
C
E
Kyn
Karlar
Konur
Mynd 1b. Kaplan-Meier-graf sem sýnir lifun án MACCE eftir kransæðahjáveitu á
Íslandi 2001-2013 og 95% öryggisbil (brotalínur).
Mynd 1a. Kaplan-Meier-graf sem sýnir lifun kvenna og karla sem gengust undir
kransæðahjáveituaðgerð á Íslandi frá 2001-2013 og 95% öryggisbil (brotalínur).
0.4
0.6
0.8
1.0
0 30 60 90 120
Mánuðir frá aðgerð
Li
fu
n
Kyn
Karlar
Konur
Tafla IVa. Sjálfstæðir forspárþættir dauða innan 30 daga frá kransæðahjáveitu.
Gagnlíkindahlutfall og 95% öryggisbil.
Forspárþáttur Gagnlíkindahlutfall 95% ÖB p-gildi
Aldur, ár 1,00 1,00-1,00 <0,001
Kvenkyn 1,00 0,98-1,01 0,6
Háþrýstingur 0,99 0,98-1,01 0,4
Sykursýki 1,01 0,99-1,03 0,1
Langvinn nýrnabilun 1,04 1,02-1,13 <0,001
Hjartabilun 1,07 1,03-1,13 0,03
Tafla IVb. Sjálfstæðir forspárþættir verri lifunar eftir kransæðahjáveituaðgerð.
Áhættuhlutfall og 95%-öryggibil.
Forspárþáttur Áhættuhlutfall 95% ÖB p-gildi
Aldur, ár 1,08 1,06-1,10 <0,001
Kvenkyn 1,10 0,83-1,45 0,5
Háþrýstingur 0,91 0,70-1,17 0,4
Sykursýki 2,01 1,52-2,67 <0,001
Hjartabilun 3,62 2,06-6,38 <0,001
Langvinn nýrnabilun 1,74 1,33-2,30 <0,001
Fyrri saga um kransæðavíkkun 1,20 0,91-1,64 0,2