Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.07.2018, Page 28

Læknablaðið - 01.07.2018, Page 28
352 LÆKNAblaðið 2018/104 vitni um vísindalega sannleiksleit Jóns. Hann var einnig fyrstur manna á Íslandi til að gera skurð- aðgerð í svæfingu.4 Þegar litið er yfir sögu íslenskr- ar læknisfræði er það óneitanlega athyglisvert að fyrsti formlega menntaði læknirinn og jafnframt fyrsti landlæknirinn, Bjarni Pálsson (1719-1779), var orðinn víðkunnur fræðimaður áður en hann lauk prófi í læknisfræði. Var það fyrir Íslandslýsingu þá sem hann samdi í samstarfi við Eggert Ólafsson (1726- 1768) og var lengi traustasta heimild sem til var um Ísland og Íslendinga.5 Tengdasonur Bjarna, Sveinn Pálsson (1762-1840), var af næstu kynslóð íslenskra lækna og hann má telja merkasta íslenskan vísindamann 19. aldar þótt rannsókn- ir hans beindust ekki nema að litlu leyti að læknisfræði.6 Hann varð einna fyrstur manna í heiminum til að lýsa eðli skriðjökla, þótt birting niðurstaðna hans tefðist. Sveinn skýrði hreyfingu jöklanna með líkingu við harpix. Hann vakti athygli á halla blá- grýtislaga. Hann var fyrstur manna til að setja fram þá kenningu að gervigígar mynduðust við gufusprengingar undir nýju hrauni. Hann lýsti upptökum Skaftáreldahrauns og hann varð fyrstur manna til að vara við eyðingu skóga á Íslandi enda er dagur um- hverfisins haldinn árlega á fæðingardegi hans, 25. apríl. Þessir tveir íslensku læknar, önnum kafnir eins og þeir voru, sóttu sér rannsóknarefni til almennra náttúruvísinda, landfræði og jarðfræði, en í minna mæli til læknisfræðilegra úrlausnarefna. Var það mjög í anda þess tíma sem þeir störfuðu á og í einhverj- um mæli allra tíma. Pasteur, sá mikli faðir læknisfræðilegrar þekkingar á 19. öld, var efnafræðingur að mennt. Nóbelsverð- launahafarnir í efnafræði árið 2012 voru hins vegar báðir lækn- ar, reyndar hjartalæknar, þeir Robert J. Lefkowitch og Brian K. Kobilka, sem meðal annars tókst að fanga myndrænt sameindalíf- fræðilegar breytingar sem verða þegar noradrenalín binst viðtaka á yfirborði frumu.7 Þessi dæmi eiga sér margar hliðstæður og undirstrika þá fræðilegu brúarsmíð sem oft á sér stað milli fræði- greina, einmitt þegar þekkingarleitin rís hæst og skilar mestum árangri. Í samtímanum eru flest stórvirki í læknisfræðilegum rannsóknum unnin í samstarfi sérfræðinga úr mörgum fræði- greinum, ekki síst líffræðinga og tölfræðinga. Í þessum anda er við hæfi í umfjöllun um vísindastörf í lækn- isfræði á Íslandi að kalla snemma til sögunnar Hannes Finnsson, biskup (1739-1796). Ekki vegna þess að hann var langafi Níelsar Finsen (1860-1904), eina íslenska (og danska) Nóbelsverðlauna- hafans í læknisfræði sem fæddur var og uppalinn í Færeyjum, heldur vegna ritgerðar hans um „Mannfækkun af hallærum á Íslandi“,8 sem segja má að spanni sögu þjóðarinnar frá land- námi til ritunartíma gegnum rannsókn á áhrifum hallæra og hungursneyða á afkomu og afdrif þjóðarinnar. Á 19. öld urðu að sjálfsögðu mikilvægar alþjóðlegar framfarir í læknisfræði með landvinningum vefjameinafræði, ónæmisfræði og örverufræði sem lögðu grundvöll að gerbreyttri heilbrigðis- þjónustu. Það var þó komið fram á 20. öld þegar fyrsti sérmennt- aði íslenski meinafræðingurinn kom til starfa. Það var Stefán Jónsson (1881-1961) sem þrátt fyrir stuttan starfstíma á Íslandi vann það með- al annars sér til frægðar að hefja blóðflokkun á Íslendingum og hann uppgötvaði að íslenskir blóðflokkar líktust meira þeim skosku og írsku en blóðflokkum Norðurlandabúa.9 Segja má að þáttaskil hafi orðið með tilkomu Níelsar Dungals (1897-1965). Vísindalegt framlag hans var marg- þætt. Hann framleiddi nýtt bólu- efni gegn bráðapest 1929, fann orsök lungnapestar í sauðfé 1930, framleiddi bóluefni gegn veikinni og innleiddi nýja meðferð á ormaveiki í sauðfé 1934. Rannsóknir hans voru að verulegu leyti fjármagnað- ar af Heilbrigðisstofnun Bandaríkjanna. Níels Dungal stundaði krabba- meinsrannsóknir og lagði á ráðin um varnir gegn krabbameini. Hann var meðal alþjóðlegra frumkvöðla í bar- áttu gegn reykingum. Í grein hans í Lancet árið 195010 er að finna einhver fyrstu þungvægu varnaðarorðin um tengsl reykinga og lungnakrabba- meins. Þetta viðfangsefni var tekið til alvarlegrar umfjöllunar í leiðara sama blaðs. Áður hafði athygli margra beinst fremur að sóti og öðr- um mengunarvöldum andrúmslofts. Níels byggði niðurstöður sínar á meira en þúsund krufningum sem hann hafði staðið að, en aðeins fundið fá tilvik lungnakrabba- meins. Út frá vaxandi reykingum landsmanna áætlaði hann aukna tíðni krabbameinsins á komandi árum. Þótt leiðarahöfund- urinn í Lancet hafi haft efasemdir um þetta mat, sýndi reynslan að Níels hafði rétt fyrir sér. Níels Dungal var líklega fyrstur manna til að benda á skaðsemi fjölhringa kolefnissambanda, til dæmis benspýrens, og tengsl þeirra við magakrabbamein.11 Þessi kenning var studd meðan annars af samanburði við neysluvenjur annarra þjóða, atvinnustétta og búsetu hérlendis eftir héruðum. Júlíus Sigurjónsson, Ólafur Bjarna- son, Hrafn Tulinius og fleiri lögðu einnig lóð á þessar metaskálar. Júlíus Sigurjónsson (1907-1988) var 10 árum yngri en Dungal. Hann varð fyrstur til að rannsaka ítarlega mataræði landsmanna. Til manneldisráðs var stofnað árið 1939, en þá var 7 manna nefnd falið að rannsaka þetta viðfangsefni. Júlíus var framkvæmdastjóri ráðsins. Árið 1944 lágu fyrir niðurstöður rann- sókna í sérstakri bók eftir Júlíus, sem bar titilinn Mataræði og heilsufar Níels Dungal. Júlíus Sigurjónsson. Sveinn Pálsson. Stefán Jónsson.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.