Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.07.2018, Qupperneq 29

Læknablaðið - 01.07.2018, Qupperneq 29
LÆKNAblaðið 2018/104 353 á Íslandi.12 Kom í ljós að mataræði landsmanna var á margan hátt mjög ábótavant, sérstaklega skorti vítamín í fæðuna og neysla á grænmeti og ávöxtum var langt fyr- ir neðan það sem nú er ráðlagt. Rannsóknir Jóns Steffensen (1905-1991) snerust einkum um fornfræði, fornleifar og beinafræði, en hann dró af þeim mikilvægar ályktanir um sjúkdóma fyrri kyn- slóða. Fyrsta ritgerð Jóns Steffen- sen af þessu tagi er „Knoglerne fra Skeljastaðir“ sem birtist í ritinu Forntida gårdar i Island. Þetta er yfirgripsmikil ritgerð er fjall- aði um rannsóknir sem fóru fram á Skeljastöðum í Þjórsárdal árið 1939. Þór Magnússon13 greinir frá því að þar sé í fyrsta skipti fjallað um beinafræði sem fornfræðilegt efni hér lendis. Síðan fjallaði Jón um margvíslegar greinar íslenskrar mann fræði, líkamsvöxt, heilsufar og manngerðir, og reyndi hann þar meðal annars að komast að því hvaða þjóðum Íslend ingar væru skyldastir. Björn Sigurðsson (1911-1959) var mjög fjölhæfur vísindamaður. Rockefeller-sjóðurinn bandaríski lagði fram veglegan styrk til upp- byggingar Tilraunastöðvarinnar að Keldum með því skilyrði að Björn yrði forstöðumaður. Stöðin tók til starfa árið 1948 en henni var ætlað að bregðast við sauðfjárpestum sem borist höfðu til landsins með innflutningi búfjár. Þeir sjúkdómar sem lögðust á sauðfé landsmanna og Björn rannsakaði voru votamæði, visna, þurramæði, riða og garnaveiki. Úr heilasjúkdóminum visnu og lungnasjúkdóminum mæði ræktuðust áður óþekktar veirur. Á grundvelli rannsókna sinna setti Björn fram kenningu sína um sérstakan flokk smitsjúkdóma sem hann nefndi hæggenga smitsjúkdóma.14 Þetta var ný hug- mynd sem vakti alþjóðlega athygli en staðfestist endanlega með tilkomu alnæmissjúkdómsins árið 1981. Samstarfsmenn Björns og eftirkomendur héldu kyndlinum á lofti og Tilraunastöðin á Keldum nýtur alþjóðlegrar virðingar fyrir sitt mikilvæga framlag í veirufræði. Má til dæmis nefna að Margrét Guðnadóttir (1929- 2018) setti fram þá kenningu að mæði-visnuveiran kæmist undan ónæmissvari hýsils með stökkbreytingu. Kenningin reyndist rétt og síðar kom í ljós að það sama gilti um hina náskyldu alnæm- isveiru, HIV. Fullyrða má að ekkert rannsóknarsvið hafi sett mark sitt jafn kröftuglega á íslensk læknavísindi á síðustu áratugum og mannerfðafræðin. Kortlagning á erfðamengi mannsins upp úr síðustu aldamótum gaf fyrirheit um dýpri skilning á sam- eindaerfðafræðilegum orsökum sjúkdóma og ný skotmörk fyrir lyf og forvarnarúrræði. Ákefðin í erfðafræðirannsóknum varð mikil um allan heim og ekki síst á Íslandi og leiddi til þekk- ingarsprengingar sem ekki sér fyrir endann á. Erfðarannsóknir í íslenskri lækn- isfræði höfðu þó komist á dagskrá löngu fyrr og samhliða faraldsfræði- rannsóknum, til dæmis á vegum Hjartaverndar og Krabbameinsfé- lagsins í samvinnu við Landspítala, fór fram um árabil lífsýnasöfnun í margþættum tilgangi sem á seinni árum hefur meðan annars borið ávöxt í erfðarannsóknum. Árni Árnason (1885-1971) starfaði sem héraðslæknir í Dalasýslu snemma á síðustu öld. Hann veitti eftirtekt alvarlegum heilablæðingarsjúkdómi sem lagði ungt fólk að velli í kring- um Breiðafjörð og lá greinilega í ættum. Árni tók sér fyrir hendur að rannsaka sjúkdóminn og skrifaði um hann doktorsritgerð sem hann varði við Háskóla Íslands en birti á þýsku árið 1935 undir titlinum „Apoplexie und ihre Vererbung“.15 Fjölmargir vísinda- Jón Steffensen Björn Sigurðsson. Árni Árnason. Vegagerð í Grafarholti í júlí 1971. Tilraunastöð ríkisins að Keldum blasir við. Myndina tók Ari Kárason og hún er varðveitt á Ljósmyndasafni Reykjavíkur.

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.