Læknablaðið - 01.07.2018, Page 49
LÆKNAblaðið 2018/104 373
Dagana 9.-15. júní voru haldnar tvær
alþjóðlegar ráðstefnur bæklunarlækna í
Reykjavík.
Fyrra þingið var árleg ráðstefna ISAR
(International Society of Arthroplasty
Registers). Þar mættust um 200 manns
frá 20 þjóðum, en á þinginu kynntu sér-
fræðingar rannsóknir um ísetta gerviliði
og eftirfylgni þeirra. Fjölmargar rannsókn-
ir hafa verið gerðar til að kanna endingu,
fylgikvilla og almenn lífsgæði eftir slíkar
aðgerðir. Þessar upplýsingar hafa heil-
brigðisyfirvöld nýtt við ákvarðanatöku,
stefnumótun, gæðaeftirlit og fleira vegna
gerviliðaaðgerða. Flutt voru 120 erindi og
kynntur var nýr alþjóðlegur gagngrunnur
með upplýsingum um hönnun og eigin-
leika einstakra íhluta gerviliða.
Síðari ráðstefnan var alþjóðleg ráð-
stefna norrænna bæklunarlækna (The
Nordic Orthopaedic Federation), en í þeim
samtökum eru allar Norðurlandaþjóðirnar
auk Hollands, Eistlands og Litháen. Þingið
er haldið annað hvert ár og skiptast þær
8 þjóðir sem eru í NOF á að halda þingið.
Ríflega 400 þátttakendur voru skráðir á
þingið. Farið var um víðan völl varðandi
meðferðir og rannsóknir í bæklunar-
lækningum með 120 fyrirlestrum og 50
veggspjöldum. Norrænir rannsakendur
kynntu niðurstöður sínar og gestafyrir-
lesarar fluttu erindi. Meðal áhugaverðra
fyrirlestra má nefna fyrirlestur um kosti
og ókosti gerviliða í lendhrygg og hugs-
anlegt ofnæmi fyrir gerviliðum. Cecilia
Götherström frá Karolinska Institutet lýsti
meðferð fóstra í móðurkviði við hinn arf-
genga sjúkdóm beinstökkva (Osteogenesis
Imperfecta). Kári Stefánsson fjallaði um
erfðafræðirannsóknir og bæklunarsjúk-
dóma.
Í tengslum við síðari ráðstefnuna var
haldið kennslunámskeið um bakverki/
bakvandamál þar sem þekktir íslenskir
og erlendir fyrirlesarar fjölluðu um þessi
vandamál frá ýmsum sjónarhólum.
Þing
bæklunarlækna
Þátttakendur á ráðstefnu NOP voru með sína bækistöð á Nordica hótelinu.
Grétar Ottó Róbertsson forseti þings NOP og ISAR og Ragnar Jónsson formaður Íslenska bæklunarlæknafélagsins
höfðu veg og vanda af ráðstefnunum. Hér eru þeir við lok síðustu dagskrárinnar og kampakátir með uppskeruna.