Læknablaðið - 01.06.2018, Síða 3
Hlíðasmára 8
201 Kópavogi
sími 564 4104
Útgefandi
Læknafélag Íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Ritstjórn
Magnús Gottfreðsson,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Elsa B. Valsdóttir
Gerður Gröndal
Hannes Hrafnkelsson
Magnús Haraldsson
Sigurbergur Kárason
Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir
Tölfræðilegur ráðgjafi
Thor Aspelund
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður
Hávar Sigurjónsson
havar@lis.is
Auglýsingastjóri og ritari
Esther Ingólfsdóttir
esther@lis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@lis.is
Upplag
2000
Prentun, bókband
og pökkun
Prenttækni ehf.
Vesturvör 11
200 Kópavogi
Áskrift
14.900,- m. vsk.
Lausasala
1490,- m. vsk.
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta
og geyma efni blaðsins á rafrænu formi,
svo sem á netinu. Blað þetta má eigi
afrita með neinum hætti, hvorki að hluta
né í heild, án leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru skráð-
ar (höfundar, greinarheiti og útdrættir)
í eftirtalda gagnagrunna: Medline
(National Library of Medicine), Science
Citation Index (SciSearch), Journal Cita-
tion Reports/Science Edition, Scopus
og Hirsluna, gagnagrunn Landspítala.
The scientific contents of the Icelandic
Medical Journal are indexed and
abstracted in Medline (National Library
of Medicine), Science Citation Index
(SciSearch), Journal Citation Reports/
Science Edition and Scopus.
ISSN: 0023-7213
LÆKNAblaðið 2018/104 275
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL
www.laeknabladid.is
Læknablaðið hefur fengið Önnu Þorbjörgu Þorgrímsdóttur til að velja og skrifa um kápumyndir
á 104. árgangi blaðsins í tilefni 100 ára afmælis Læknafélags Íslands. Myndirnar tengjast þeim efnum sem
eru í brennidepli afmælisgreina hvers tölublaðs.
Anna er sagnfræðingur og safnafræðingur og fyrrum stjórnandi Lækningaminjasafnsins.
„Þau koma reykjandi úr barnaskólanum“
Læknar hafa lengi látið að sér kveða í opinberri umræðu
um heilbrigðismál þjóðarinnar. Í krafti menntunar sinnar
og reynslu og niðurstaðna klínískra rannsókna benda
þeir á það sem betur má fara. Fyrir hundrað árum voru
læknar að hlutast til um aðgengi að hreinu vatni og heil-
næmum húsakynnum, að koma í veg fyrir vannæringu og
áfengisneyslu og vinna að uppbyggingu heilsustofnana
og sjúkrasamlaga. Stefið er kunnuglegt þótt ný vandamál
kalli stöðugt á nýjar lausnir.
Þótt umræðan um rafrettur í dag minni töluvert á þá
umræðu sem fram fór á síðustu öld um reykingar þá er
varnarlínan önnur þegar verið er að innleiða nýjungar
en að breyta inngrónum venjum. Reykingar voru töluvert
almennar og hugtakið óbeinar reykingar óþekkt með öllu.
Foreldrar reyktu áhyggjulausir á heimilunum og læknar
við vinnu sína.
Merking sígarettupakka með varúðarmiðum hófst árið
1969 og ári síðar var talið fullsannað að reykingar orsök-
uðu lungnakrabbamein. Yfirlýsingin varð blaðamanni
Vísis tilefni til að ræða vaxandi reykingar meðal barna
og unglinga undir fyrirsögninni: „Þau koma reykjandi úr
barnaskólanum“ segja skólamenn um nemendur sína.
Greininni var ætlað að vekja fólk til vitundar um skaðsemi
reykinga og kallað eftir viðhorfsbreytingu. Bent var á að
áróður lækna eða hvatning skólamanna nægði ekki til og
stöðugt yngri börn ánetjuðust reykingum. Myndin sem
fylgdi greininni var valin af kostgæfni og ætlað að undir-
strika alvöru málsins. Tveir drengir, fjögurra og fimm ára,
hafa komist yfir sígarettur. Þeir bera sig fagmannlega að
og hafa haft vit á að fela sig fyrir augum fullorðna fólks-
ins, í öruggu skjóli bak við stóran stein en of uppteknir til
þess að koma auga á Jón Birgi Pétursson ljósmyndara.
Myndin er tekin í Lambastaðahverfi á Seltjarnarnesi
um 1969 og er birt með leyfi Ljósmyndasafns
Reykjavíkur.
Anna Þorbjörg Þorgrímsdóttir
Á uppskeruhátíð Landspítala voru veittir Vís-
indasjóðsstyrkir uppá 73 milljónir króna til 90
verkefna. Þá fengu fjórir ungir vísindamenn
styrk: Ása Bryndís Guðmundsdóttir lyfjafræði-
nemi, Bára Dís Benediktsdóttir læknir, Elva Rut
Sigurðardóttir læknanemi og Ólafur Pálsson
læknir.
Ása Bryndís Guðmundsdóttir er í dokt-
orsnámi í ónæmisfræði við læknadeild HÍ og ber
doktorsverkefni hennar heitið „Utanfrumufjöl-
sykrur blágrænþörunga úr Bláa Lóninu draga úr
tjáningu angafrumna á SYK og CLEC7a“.
Bára Dís Benediktsdóttir rannsakar erfða-
breytileika sem veldur skyndidauða og er rann-
sóknin unnin í samstarfi Landspítala og Íslenskr-
ar erfðagreiningar.
Elva Rut Sigurðardóttir rannsakar nýgengi
fósturköfnunar á Íslandi og hvernig það hefur
breyst á undanförnum árum.
Ólafur Pálsson hefur rannsakað alla sjúklinga
á Íslandi með sóragigt sem eru að hefja meðferð
með líftæknilyfjum.
Ungir vísinda-
menn Land-
spítala 2018
Ása Bryndís Guðmundsdóttir,
Bára Dís Benediktsdóttir,
Elva Rut Sigurðardóttir
og Ólafur Pálsson.
Myndina tók ljósmyndari
spítalans, Þorkell Þorkelsson.