Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.06.2018, Page 39

Læknablaðið - 01.06.2018, Page 39
LÆKNAblaðið 2018/104 311 að skoða aðrar leiðir. Það er til mikils að vinna að rannsaka meðgöngueitrun og leita leiða til lausna. Á Íslandi hefur í áratugi verið boðin skimun fyrir litningagöllum fósturs, frá um 1978 fyrir konur ≥35 ára en frá 2003 fyrir allar konur. Í dag er orðið mun ein- faldara að skima fyrir litningagerð fósturs, nú er það hægt með einfaldri blóðprufu frá móður. Til greiningar hefur til þessa þurft að gera inngrip með ástungu í leg og ýmist tekið sýni frá fylgju eða legvatni, en slík inngrip fela í sér um 0,5-1% líkur á fósturláti. Einföld blóðprufa sem gefur nákvæmar vísbendingar um litningafrávik er því stórt stökk framávið því þessi aðferð leiðir til mikillar fækkunar inngripa og hefur ekki í för með sér hættu á fósturláti. Þarna er hægt að auka samstarf verulega þó hvert land hafi sín lög hvað þetta varð- ar og Noregur er reyndar með þrengri lagaramma sem takmarkar verulega hvað má rannsaka miðað við hin Norður- löndin,“ segir Hildur. Vinsæl sérgrein meðal kvenna Þær segja að þótt nýburadauði sé með því lægsta sem þekkist í heiminum, um fjög- ur börn af hverjum 1000 fæddum, megi vissulega gera betur. „Þetta er tvíþætt,“ segir Hulda. „Annars vegar að rannsaka og finna lausnir á fyrirburafæðingum, sem eiga stóran þátt í dánartíðninni, en einnig að rannsaka orsakir þess að full- burða börn fæðast andvana eða deyja skömmu eftir fæðingu. Þetta eru mjög fá börn en í okkar litla samfélagi vegur hvert tilfelli mjög þungt.“ „Það fæðast líka alltaf nokkur börn með meðfædda missmíð til dæmis hjarta- galla, þindarslit eða aðra líkamlega galla en oft erum við búin að greina vandann í móðurkviði og erum búin að undirbúa fæðingu og nýburagjörgæsluna. Þá er mjög mikill viðbúnaður af hálfu gjör- gæsludeildar nýbura og það getur skipt sköpum varðandi horfur barnsins eftir fæðingu. Þindarslit fósturs getur leitt til vanþroska í lungum en núna er hægt að gera aðgerð á fósturskeiði sem dregur úr þeim vanda. Það felst í aðgerð á fóstrinu í móðurkviði þar sem tappi er settur í barka sem leiðir til þess að lungun þenjast betur út. Það er mikil framför og er þetta ein af þessum sérhæfðu aðgerðum sem við erum að tala um. Áherslur sérgreinarinn- ar „fósturgreining og áhættumeðganga“ eru fósturgreining sem fer fram fyrst og fremst með ómskoðun með það markmið að undirbúa sem best komu barnsins sem þarf á sérstakri aðstoð að halda. Nú eru að koma upp æ fleiri möguleikar á aðgerðum á fóstri í móðurkviði til að bæta enn frekar hag ófædda barnsins. Sérgreinin „fetal medicine“ er sums staðar nefnd „ma- ternal-fetal medicine“ og er viðurkennd undirsérgrein fæðingarlækninga í mörg- um löndum. Á Íslandi heitir sérgreinin „Fósturgreining og áhættumeðganga“. Hér á fæðingardeild Landspítala er sérstök fósturgreiningardeild og við erum fjórir læknar sem þar starfa en sinnum jafnframt einnig öðrum störfum innan fæðinga- og meðgöngudeilda,“ segir Hildur. Á Landspítala er í boði fyrri hluti sér- náms í fæðingarlækningum eða tvö ár og að sögn Huldu og Hildar hafa sérnáms- stöðurnar verið fullskipaðar undanfarin ár. Í undirbúningi er að fá þriðja árið metið til sérnámsviðurkenningar. „Það hefur skapast sú hefð að sérnámslæknarn- ir okkar taka fyrstu tvö árin hér heima auk eins árs í skurðlækningum og síðan seinni tvö árin erlendis, oftast í Svíþjóð, og geta þá sótt um sérfræðiréttindi í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum. Margir taka svo eitthvað til viðbótar þó það leiði ekki endilega til réttinda í undirsérgrein en er engu að síður mikilvæg viðbót við sér- námið,“ segir Hildur. Þær segja að fæðingarlækningar séu orðin kvennagrein að miklum meirihluta. Hvað veldur er samspil margra þátta að þeirra sögn. „Það hefur komið fram í rann- sóknum að konur sæki frekar í sérgreinar innan læknisfræði þar sem vaktabyrði er lítil en það stenst ekki þegar kemur að fæðingarlækningum þar sem vaktabyrði er mjög þung og konurnar í meirihluta,“ segir Hulda. „Fæðingarlækningar höfða eflaust meira til kvenna en við megum heldur ekki gleyma því að konur eru í meirihluta meðal útskrifaðra lækna og svo vitum við að ungu karlmönnunum finnst þeir ekki jafn velkomnir í þessa grein og ýmsar aðr- ar. Það er mjög leitt því við viljum gjarn- an hafa meira jafnvægi milli kynjanna í greininni.“ Þær segja það einnig hluta af vandan- um að margar konur vilja síður eða alls ekki að karlmenn sjái um skoðun þeirra. „Það geta verið ýmsar ástæður fyrir því sem liggja að baki en ef konan vill þetta ekki verður að virða það þó við læknarnir getum haft aðrar skoðanir. Þetta er þó ekki meirihluti kvenna sem hefur þessa afstöðu en við verðum að virða slíkar óskir sé þess nokkur kostur,“ segir Hildur. Margar og flóknar siðferðisspurningar Siðferðilegar hliðar á fósturrannsóknum eru flóknar og í dag er hægt að afla ýmis konar upplýsinga um fóstrið. „Þetta er mjög flókið mál og verður í rauninni sífellt Reynir Tómas Geirsson fyrrverandi yfirlæknir fæðingar- deildar og María Hreinsdóttir ljósmóðir voru heiðruð fyrir framlag sitt til fæðingarlækninga á fundinum.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.