Læknablaðið - 01.05.2018, Blaðsíða 35
LÆKNAblaðið 2018/104 255
Læknar sem starfað hafa í útlöndum, til
dæmis á Norðurlöndunum, þekkja til
þess að þar er vegna undirbúnings ráðn-
ingarviðtals hægt að fá upplýsingar um
launakjör á þeirri starfseiningu þar sem
viðkomandi lækni býðst að starfa. Samn-
inganefnd Læknafélags Íslands hefur
freistað þess í síðustu tveimur samninga-
lotum við ríkið að fá í kjarasamning fjár-
mála- og efnahagsráðherra og Læknafé-
lags Íslands ákvæði um að áður en læknir
gengur frá ráðningu sinni og undirritar
ráðningarsamning fái hann upplýsingar
um meðallaun lækna á þeirri einingu
(sviði og/eða deild) sem hann er að ráða
sig á, meðaltal, miðgildi, hæstu og lægstu
10% laun. Ekki tókst að ná samkomulagi
um þetta.
Mögulega er ákvæði af þessu tagi
óþarft í kjarasamningi því samkvæmt 7.
gr. upplýsingalaga nr. 140/2012, sem gengu
í gildi 1. janúar 2013, á almenningur rétt
á upplýsingum um ýmis atriði er varða
opinbera starfsmenn, meðal annars föst
launakjör annarra starfsmanna en æðstu
stjórnenda (3. tölul. 2. mgr. 7. gr.) og launa-
kjör æðstu stjórnenda (4. tölul. 2. mgr. 7.
gr.). Þessi réttur var fyrir hendi samkvæmt
eldri upplýsingalögum og er sambærilegur
við það sem gildir á hinum Norðurlöndun-
um varðandi aðgang að upplýsingum um
laun opinberra starfsmanna. Læknar sem
starfa hjá ríkinu samkvæmt kjarasamningi
fjármála- og efnahagsráðherra teljast opin-
berir starfsmenn. Heimildin til aðgangs að
launaupplýsingum skv. 7. gr. upplýsinga-
laga er víðtækari en sú sem reynt hefur
verið að ná inn í kjarasamning lækna.
Í þessari heimild felst að skylt er að
veita upplýsingar um föst launakjör
annarra starfsmanna en æðstu stjórnenda
og um heildarlaunakjör æðstu stjórnenda.
Í bréfi forsætisráðuneytisins til fjár-
mála- og efnahagsráðuneytis dags. 5.
febrúar 20141 er fjallað nánar um 7. gr.
upplýsingalaga og túlkun hennar. Þar
kemur fram að undir hugtakið föst launa-
kjör falli allar fastar greiðslur frá vinnu-
veitanda, svo sem föst ómæld yfirvinna
og bifreiðastyrkur. Þegar upplýsingarnar
eru afhentar er talið rétt að sundurliða þær
þannig að fram komi fjárhæð mismunandi
tegunda greiðslna og er í bréfinu vegna
þessa vísað til álits umboðsmanns Alþing-
is í máli 5103/2007. Í bréfinu kemur einnig
fram að með föstum launakjörum sé meðal
annars átt við ráðningarsamninga og aðrar
ákvarðanir eða samninga sem kunna að
liggja fyrir um föst launakjör starfsmanns.
Rétturinn telst ná til gagna sem geyma
upplýsingar um allar fastar greiðslur sem
starfsmaðurinn á rétt á en óheimilt er að
veita upplýsingar um greidd heildarlaun
opinbers starfsmanns. Þannig er almennt
ekki litið svo á að upplýsingarétturinn
nái til aðgangs að launaseðlum einstakra
starfsmanna, nema með samþykki þeirra.
Í fyrrnefndu bréfi kemur fram að nafn-
greina beri starfsmenn sé þess óskað þegar
veittar eru upplýsingar um launakjör og
að rétt sé að miða við það að það sé ekki
gert nema sérstaklega sé óskað eftir því.
Í bréfinu er bent á að ákvæði laga um
persónuvernd og meðferð persónuupplýs-
inga nr. 77/2000 haggi ekki þessum rétti
almennings til upplýsinga. Sá sem tekur
við upplýsingunum þarf þó að gæta að
ákvæðum persónuverndarlaga þar sem
vinnsla upplýsinga sem aflað er með þess-
um hætti er háð ákvæðum þeirra laga.
Samkvæmt bréfinu er litið svo á að á
stjórnvöldum hvíli hvorki bein né ótvíræð
skylda til að fræða starfsmenn um að ósk-
að hafi verið eftir aðgangi að upplýsingum
um launakjör þeirra. Í bréfinu er þó bent á
að það teljist til góðra stjórnsýsluhátta og
sé eðlileg framkvæmd að starfsmaður sé
upplýstur um það að óskað hafi verið eftir
þessum aðgangi. Starfsmenn eru heldur
ekki taldir njóta andmælaréttar samkvæmt
13. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 þar sem
sá réttur er bundinn við aðila máls. Aðili
máls í slíku máli er sá sem óskar eftir upp-
lýsingunum.
Á þennan rétt hefur reynt nokkrum
sinnum hjá úrskurðarnefnd um upp-
lýsingamál. Í úrskurði A-492/2013 frá
16. ágúst 20132 var kærð sú ákvörðun
Byggðastofnunar að synja um afhendingu
ráðningarsamninga við tilgreinda starfs-
menn stofnunarinnar. Ekki var fallist á
það með stofnuninni að réttur almennings
til aðgangs að upplýsingum um föst launa-
kjör opinberra starfsmanna ætti að víkja
fyrir viðskipta- og samkeppnishagsmun-
um sem Byggðastofnun vísaði til. Þá gæti
stjórnvald ekki lofað starfsmanni að ekki
yrði veittur aðgangur að ráðningarsamn-
ingi viðkomandi. Niðurstaða nefndarinnar
var því sú að Byggðastofnun skyldi veita
aðgang að ráðningarsamningunum en
afmá fyrst úr þeim aðild að stéttarfélagi og
lífeyrissjóði.
Á sama reyndi í úrskurði 661/2016 frá
30. nóvember 20163 og 666/2016 frá 30.
desember sama ár.4 Í báðum málunum
var kærð synjun Vestmannaeyjabæjar um
aðgang að ráðningarsamningi tiltekins
starfsmanns sveitarfélagsins. Í báðum til-
vikum var það niðurstaða nefndarinnar að
veita skyldi aðgang að ráðningarsamningi
en afmá fyrst upplýsingar um aðild að
stéttarfélagi, lífeyrissjóði og bankaupplýs-
ingar.
Af framangreindu er ljóst að læknir
sem undirbýr ráðningarsamtal eða launa-
samtal við yfirmann getur í aðdraganda
þess kallað eftir afriti af ráðningarsamn-
ingum lækna á þeirri deild sem hann er
að ráða sig til eða starfar á og þannig aflað
upplýsinga um launakjör annarra lækna
á einingunni. Ekki er annað hægt en að
hvetja lækna til að nýta sér þessa heimild
7. gr. upplýsingalaga. Skrifstofa Lækna-
félags Íslands getur verið læknum til að-
stoðar í þessu efni.
Heimildir
1. stjornarradid.is/media/fjarmalaraduneyti-media/media/
Frettabref_forstodumanna/Upplysingar-um-fost-
launakjor-starfsmanna-7.-gr.-upplysingalaga.pdf – apríl
2018.
2. unu.is/urskurdir/nr/7669 – apríl 2018.
3. unu.is/urskurdir/661-2016-urskurdur-fra-30-november-
2016 – apríl 2018.
4. unu.is/urskurdir/666-2016-urskurdur-fra-30-desember-
2016 – apríl 2018.
Læknar eru hvattir til að koma ábendingum
um efni á framfæri við ritstjórn eða pistlahöfund.
Dögg
Pálsdóttir
lögfræðingur
Læknafélags Íslands
Dogg@lis.is
Réttur til upplýsinga um laun
L Ö G F R Æ Ð I 2 7 . P I S T I L L