Læknablaðið - 01.05.2018, Blaðsíða 23
Gegnsæi og ábyrgð
Í lok júní munu aðildarfyrirtæki Frumtaka og EFPIA
birta ársskýrslu með upplýsingum um tilteknar
greiðslur vegna samstarfs við heilbrigðis starfsfólk
og heilbrigðisstofnanir sem inntar voru af hendi á
síðasta ári. En hvers vegna?
Samstarf heilbrigðisstarfsfólks og lyfjafyrirtækja hefur haft
jákvæð áhrif á þróun meðferða og lyfja. Þessir aðilar taka
iðulega höndum saman við rannsóknir og fræðslu, til
hagsbóta fyrir sjúklinga.
Með innleiðingu siðareglna hafa lyfjafyrirtækin og
heilbrigðisstarfsfólk unnið að því að efla þær reglur sem
samstarf þeirra byggist á. Almenningur á að geta treyst því
að slíkt samstarf hafi ekki áhrif á klínískar ákvarðanir og að
heilbrigðisstarfsfólk ráðleggi, veiti eða kaupi viðeigandi
meðferð og þjónustu sem byggist eingöngu á klínískum
niðurstöðum og reynslu.
Framkvæmdastjórn ESB hefur gefið út reglur um eflingu
góðra stjórnunarhátta í lyfjaiðnaðinum sem allir hags
munaaðilar samþykktu árið 2013. Þessar reglur gera ráð fyrir
að upplýsingar um tilteknar greiðslur verði gerðar opinberar.
EFPIA, Frumtök og öll okkar aðildarfyrirtæki styðja þessar
reglur um birtingu upplýsinga. Reglurnar kveða á um að öll
aðildarfyrirtæki birti upplýsingar um greiðslur til heilbrigðis
starfsfólks og stofnana. Þær greiðslur sem reglurnar ná til
eru t.d. styrkir til heilbrigðisstofnana, ráðgjafagreiðslur fyrir
fyrirlestra, ferða og dvalarkostnaður og skráningargjöld á
ráðstefnur. Þessar upplýsingar verða birtar á heimasíðu
Frumtaka, www.frumtok.is
Markmiðið er að efla samstarf lyfjafyrirtækja og
heilbrigðisstarfsfólks með því að gera það gegnsærra fyrir
sjúklinga og aðra þá sem hagsmuna eiga að gæta. Við
hlökkum til að vinna áfram að því að auka gæði meðferða,
rannsókna og almennrar umönnunar sjúklinga.
Frekari upplýsingar og kynningarefni:
transparency.efpia.eu | pharmadisclosure.eu
Frumtök – samtök
framleiðenda frumlyfja
Húsi atvinnulífsins,
Borgartúni 35, 105 Reykjavík
Sími 588 8955
www.frumtok.is
frumtok@frumtok.is
DISCLOSURE
CODE