Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.05.2018, Blaðsíða 49

Læknablaðið - 01.05.2018, Blaðsíða 49
Í byrjun apríl 2018 voru 7 starfsmenn kvaddir sem létu af störfum sökum aldurs á Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) á árinu 2017. Samanlagður starfsaldur fólksins við stofnunina eru 154 ár, en innan hópsins eru einstaklingar sem hafa starfað hjá stofnuninni í 30-40 ár. Þau hafa því starfað hjá HSU nær allan sinn starfs- feril sem er einstakt. „Við þökkum þeim öllum fyrir vel unnin störf, gott samstarf í gegnum árin og trúmennsku í þágu heil- brigðisþjónustu á Suðurlandi, auk þess að óska þeim farsældar og velfarnaðar í framtíðinni,“ segir Herdís Gunnarsdóttir, forstjóri HSU. Þau sem létu af störfum eru: • Ásta Skúladóttir, móttökuritari á heilsugæslunni í Laugarási, starfaði hjá HSU í 6 ár. • Bóthildur Steinþórsdóttir, ljósmóðir Sel- fossi, starfaði hjá HSU í 18 ár. • Helgi Hauksson, læknir á heilsugæsl- unni í Þorlákshöfn, starfaði hjá HSU í 38 ár. • Ingunn Úlfars Sigurjónsdóttir, læknarit- ari á Selfossi, starfaði hjá HSU í 40 ár. • Svanlaug Eiríksdóttir, starfsmaður í þvottahúsi Selfossi, starfaði hjá HSU í 9 ár. • Þorbjörg Ársælsdóttir, launafulltrúi á skrifstofu Selfossi, starfaði hjá HSU í 34 ár. • Þorkell Guðbrandsson, læknir á lyflækn- ingadeild Selfossi, starfaði hjá HSU í 9 ár. Þá má geta þess að tveir starfsmenn sem störfuðu í Vestmannaeyjum hættu einnig á árinu 2017 sökum aldurs og verður þeim haldið sérstakt kveðjuhóf í Vestmannaeyj- um fljótlega. Kvöddu Heilbrigðisstofnun Suðurlands eftir 154 ára starf ■ ■ ■ Magnús Hlynur Heiðarsson Fimm af starfsmönnunum sem höfðu tök á því að mæta þegar þeim var haldið kveðjuhóf eftir farsælt og gott starf hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Frá vinstri: Ingunn Úlfars Sigurjónsdóttir, Helgi Hauksson, Þorbjörg Ársælsdóttir, Þorkell Guðbrandsson og Svanlaug Eiríksdóttir. Heilbrigðisstofnun Norðurlands óskar eftir sérfræðilæknum og almennum læknum til starfa og afleysinga í lengri og styttri tíma. Til greina kemur að ráða lækna í verktöku sé þess óskað Upplýsingar gefa Örn Ragnarsson orn.ragnarsson@hsn.is s: 847 5681, framkvæmdastjóri lækninga Þórhallur Harðarson thorhallur.hardarson@hsn.is s: 892-3091, mannauðsstjóri Jón H. Björnsson jon.helgi.bjornsson@hsn.is s: 893-3778, forstjóri U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R Xarelto 15 mg/20 mg filmuhúðaðar töflur – Skyldutexti Þetta lyf er undir sérstöku eftirliti til að nýjar upplýsingar um öryggi lyfsins komist fljótt og örugglega til skila. Tilkynna skal Lyfjastofnun um allar aukaverkanir sem grunur er um að tengist lyfinu. Virkt efni: Rivaroxaban. Ábendingar: Fyrirbyggjandi meðferð gegn heilablóðfalli og segareki hjá fullorðnum sjúklingum með gáttatif án lokusjúkdóms og einn eða fleiri áhættuþætti, svo sem hjartabilun, háþrýsting, aldur ≥ 75 ára, sykursýki, sögu um heilablóðfall eða skammvinnt blóðþurrðarkast. Meðferð við segamyndun í djúpbláæðum og segareki í lungum og til að fyrirbyggja endurtekna segamyndun í djúpbláæðum og segarek í lungum hjá fullorðnum. Frábendingar: •Ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna. •Virk blæðing sem hefur klíníska þýðingu. •Áverki eða ástand þar sem talið er að hætta geti verið á mikilli blæðingu. Um getur verið að ræða sár sem er eða hefur nýlega verið í meltingarvegi, illkynja æxli þar sem mikil hætta er á blæðingu, nýlegan áverka á heila eða mænu, nýlega aðgerð á heila, mænu eða auga, nýlega innankúpublæðingu, þekkta æðahnúta í vélinda eða grun um slíkt, missmíði slag- og bláæðatenginga, æðagúlp, eða mjög afbrigðilegar æðar í mænu eða heila. •Samhliða meðferð með öðrum segavarnarlyfjum, t.d. ósundurgreindu (unfractionated) heparíni, léttu (low molecular weight) heparíni (enoxaparin, dalteparin o.s.frv.), heparín afleiðum (t.d. fondaparinux), segavarnarlyfjum til inntöku (warfarín, dabigatran etexilat, apixaban o.s.frv.), nema við þær sérstöku aðstæður að verið sé að skipta um blóðþynningarmeðferð eða ef ósundurgreint heparín er gefið í skömmtum sem duga til að viðhalda opnum æðalegg í miðlægri bláæð eða slagæð. •Lifrarsjúkdómur með blóðstorkutruflunum og blæðingarhættu sem hefur klíníska þýðingu þar með talið hjá sjúklingum með skorpulifur af flokki Child Pugh B og C. •Meðganga og brjóstagjöf. Heimild: Unnið í nóvember 2017 úr Samantekt á eiginleikum lyfs (nóvember 2017). Upplýsingar um aukaverkanir, milliverkanir, varnaðarorð og önnur mikilvæg atriði má nálgast í sérlyfjaskrá – www.serlyfjaskra.is. Vinsamlegast kynnið ykkur fræðsluefni ætlað læknum og sjúklingum áður en meðferð lyfsins hefst. Afhenda skal öllum sjúklingum öryggiskort áður en meðferð er hafin. Markaðsleyfishafi: Bayer AG. Umboðsaðili á Íslandi: Icepharma hf. Vinsamlegast hafið samband í síma 8218046 ef óskað er eftir fræðsluefni eða frekari upplýsingum um lyfið. Afgreiðslumáti og greiðsluþátttaka: R, G. Hámarkssmásöluverð þynnupakkninga (janúar 2018): 11.783 kr. (28 stk.), 16.913 kr. (42 stk. – 15 mg eingöngu), 35.749 kr. (98 stk.), 36.856 kr. (100 stk.). BAY171201 LÆKNAblaðið 2018/104 269

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.