Læknablaðið - 01.05.2018, Blaðsíða 38
258 LÆKNAblaðið 2018/104
Eiríkur Jónsson
læknir á Landspítala
erikjon@landspitali.is
Í dag hljóp ég rúntinn minn meðfram
gömlu Reykjavíkurhöfn og út á Granda.
Sný alltaf við á toppi þúfu Ólafar. Þúfan er
upplögð hlaupaleið þaulhyggjumannsins.
Á henni getur maður nefnilega hlaupið
hring eftir hring og jafnframt komist á
hærra plan. Á meðan ég hjassaðist áfram
var ég að brjóta heilann um ákveðið
málefni sem er umskurður sveinbarna af
trúarástæðum. Hvers vegna tóku hirðingj-
ar í Írak upp á þessari einkennilegu
siðvenju á átta daga gömlum drengjum?
Uppruni þessa siðar er þegar Abraham frá
Úr gerði sáttmála við Guð um að Abraham
og karlkyns niðjar hans sýndu trúfesti
sína í verki. Þessi sami Abraham er einnig
trúfaðir múslima og kristinna manna og
því trúarleiðtogi fleiri en margan grunar.
Páll postuli var þekktur ofsóknarmaður
kristinna manna þar til hann fékk vitrun á
leið sinni til Damaskus. Hann færði síðar
rök fyrir því að andlegur umskurður væri
fullnægjandi. Múslimar og gyðingar hafa
hins vegar ekki hvikað frá líkamlegum
umskurði.
Nú hefur verið lagt fram frumvarp á
Alþingi Íslendinga. Þingmenn úr flest-
um flokkum hafa sameinast um að um-
skurður, af trúarástæðum, verði gerður
ólöglegur á Íslandi. Slíkar aðgerðir eru
þó nær aldrei framkvæmdar á Íslandi þó
múslimar og gyðingar hafi stundað þessa
iðju um nokkra hríð. Í umræðunni örlar á
þeim misskilningi að umskurður karla og
kvenna séu sambærileg fyrirbæri. Þar er
þó eðlismunur á. Í síðara tilvikinu myndi
það jafngilda því að limurinn væri skorinn
af. Umskurður kvenna er óhæfa sem ber
skilyrðislaust að fordæma og stöðva með
öllum ráðum. Lagasetning sem hjálpar þar
til er nauðsynleg hvarvetna á byggðu bóli.
Við setningu íþyngjandi laga þykir það
ávísun á einhug landsmanna að slík lög
gildi einungis um aðra en þá sjálfa. Að
sama skapi myndu Íslendingar fljótt reka
upp ramakvein ef útlendingar dirfðust
að hlutast til um sérviskulegar lífsvenjur
þeirra. Er með þessu frumvarpi verið að
stíga skrefinu of langt í góðri meiningu?
Á með slíkri lagasetningu að refsa þeim
foreldrum, sem vilja iðka trú sína og hugs-
anlega fórna þeim sem síst skyldi, börnun-
um, á refilstigum laga og viðurlaga?
Umskurður sveinbarna er í sjálfu sér
einföld aðgerð og langoftast án alvarlegra
fylgikvilla í lengd eða bráð. Aðgerðin get-
ur þó haft alvarlegar afleiðingar eins og
sannast í leiðbeiningarriti gyðingdómsins,
Talmút. Þar kemur fram að þriðja son
þurfi ekki að umskera hafi tveimur eldri
bræðra hans blætt út eftir slíkt inngrip.
Þeir væru sem sagt með arfgengan blæð-
ingasjúkdóm og þá einboðið að sá þriðji
færi, umskorinn, sömu leið. Þetta er fyrsta
dæmi um erfðaráðgjöf ef frá er talin jarð-
ar-uppfyllingar-skipun Guðs til handa
Adam og Evu í aldingarðinum. Hvað
gyðingana varðar er umskurður svein-
barna kjarni þeirrar reglufestu sem ein-
kennir umfangsmikið trúar- og samfélags-
líf þeirra. Þeir hafa borið þennan mikla en
þyngdarlausa farangur, á ferðum sínum
eða flótta, öldum saman. Af eljusemi hafa
þeir haldið arfi sínum lifandi þrátt fyrir
mikið andstreymi á köflum. Allt frá
babýlónísku herleiðingunni og eftir að
fjandmenn þeirra brutu ítrekað niður
musteri Salómóns konungs í Jerúsalem,
ákvað hinn ráðvandi gyðingur að binda
ekki andlegt trúss sitt við land né fast-
eignir.
Hvernig er þessi umskurðarsiður þá
hugsaður? Væntanlega átti hann að vera
táknrænn og snerta tilvistarlegan kjarna
safnaðarins. Sáttmálinn átti trúlega að
innibera einhverja fórn, því alkunna er að
líf án fórnar er innihaldslaust líf. Abraham
var í ofanálag beðinn af almættinu um það
„lítilræði“ að fórna lífi frumburðar síns,
Ísaks, til þess að sanna trúfesti sína. Hann
var stoppaður af á síðustu stundu, því
Guð almáttuga virtist ekki hafa órað fyrir
því að Abraham væri bókstafstrúarmaður.
Með þessum verknaði ræktaði Abraham
fullkomlega skyldu sína við Guð, en sveik
um leið son sinn gjörsamlega í tryggð-
um. Þessi skelfilega þverstæða hefur
truflað margan angistarmanninn eins
og til að mynda heimspekinginn Søren
Kierkegaard. Sá var lengi með böggum
hildar yfir þessum frumsvikum föður
gagnvart syni sínum og ekki virðist enn
bitið úr nálinni með þetta vandræðamál
að Freud gengnum.
Sem þvagfæraskurðlæknir hef ég oft
verið spurður um afstöðu mína til um-
skurðar af trúarástæðum og þessa frum-
varps. Ég hef framkvæmt fjölda slíkra að-
gerða en bara einu sinni af trúarástæðum
hérlendis. Drengurinn fékk myndarlega
blæðingu á eftir og ég iðraðist að hafa
ljáð máls á þessu enda er fylgikvillaleysi
frumkrafa allra óþarfa læknisfræðilegra
inngripa. Ég tel téðan umskurð falla undir
slík inngrip og er að því leyti honum mót-
fallinn. Hér þarf þó að mörgu hyggja og
þörf víðari sýnar þó svo maður skynji góð-
an vilja að baki frumvarpinu. Getur það
verið viturlegt að vanda um fyrir ævaforn-
um trúar- og menningarsamfélögum
með íslenskri lagasetningu af þessu tagi?
Væri kannski farsælla að slíkar breytingar
kæmu innan úr viðkomandi samfélögum
heldur en utan frá?
Nú á dögum fer trúarlegur agi hratt
þverrandi sem og agi foreldra yfir börnum
sínum. Trúarbrögð í sínu tærasta formi eru
agakerfi þar sem regluföst tilvist eykur lík-
urnar á því að afkvæmið komi standandi
niður í lífinu og lífs af. Trúin er einnig til
þess fallin að leysa ákveðna þætti mann-
legrar tilvistar sem hafa ekki rökrænar
lausnir eins og til dæmis djúpa sorg eða
nagandi sektarkennd. - Trú hefur á þann
hátt hugræna lausn á kvaðratrótinni af
mínus einum. Þá eru tákn eða gamlar sið-
venjur leið til þess að auðga líf mannsins,
að tilheyra niði aldanna og gefa honum
sýn annarrar víddar.
Fórn
B R É F T I L B L A Ð S I N S