Breiðfirðingur - 01.04.1944, Blaðsíða 44
42
BREIÐFIRÐINGUR
4.
Þegar jólafastan tiófst, fóruin við unglingarnir að
hlakka til jólanna, enda var ástæða til þess. Aðdragand-
inn og undirbúningurinn var mikill og margvíslegur. Eitt
var það, að með jólaföstu voru allir gestir, sem inn komu
í bæinn, skrifaðir á lista, karlmenn sér og konur sér. Á
aðfangadaginn var listinn skorinn í sundur i miða og
dregið um jólasveinana og jólameyjarnar. Alltaf þurfti
að sauma einbverjum flikur fyrir jólin og prjóna ýmis
plögg, sokka, vettlinga, rósavettlinga og fleira. Öllum
vo.ru gerðir skór úr eins fallegu skinni og unnt var. Þeir
voru bryddir með hvítum eltiskinnsbryddingum, og oft
voru nýir, slyngdir íleppar i þeim. Fyrstu árin, sem ég
man, flultist liveiti af mjög skornum skammti. Yar þá
kaffibrauðið búið til úr bankabyggsmjöli. Það var sigt-
að í bársigti og baft í kleinur og pönnukökur, en af þessu
íven-nu voru búin til full trog. í jólakökuna varð að hafa
flórmjöl. Hún var bökuð í flatbotnuðum potti, með
þykku járnloki, sem féll vel að og var með hærri rönd
Hjarðarholtskirkja í Dölum,
byggð 1904.