Breiðfirðingur


Breiðfirðingur - 01.04.1944, Blaðsíða 17

Breiðfirðingur - 01.04.1944, Blaðsíða 17
SREIÐFIRÐINGUR 15 eða laust eftir 890 og „nam öll Dalalönd í innanverðum firðinum frá Dögurðará til Skraumuhlaupsár; hon bjó i Hvammi við Orriðaárós; þar heita Uðartóftir; hon liafði bænahald sitt á Krosshólum; þar lét lion reisa krossa, þvi að lion var skírð ok vel trúuð. Þar höfðu frændr henn- ar síðan átrúnað mikinn á hólana. Var þá gerr hörgr, er blót tóku til; trúðu þeir því at þeir dæi í hólana, og þar var Þórður gellir leiddr í áðr hann tók mannvirðing, sem segir i sögu hans“. (Landn. 16). Laxdæla segir, að Auður hafi verið lieygð í skipi með miklu fé. Engin munnmæli hafa geymst um það, hvar haugur Auðar væri og aldrei hefir neitt slíkt mannvirki fundizt í Hvammslandi eða ná- grenni, svo að kunnugt sé. Þessi frásögn Laxdælu er þvi efalaust ekki rétt. Hitt mun sannara, sem Landnáma skýrir frá, að Auður liafi verið grafin í flæðarmáli, „sem hon hafði fyrir sagt, því at hon vildi eigi liggja í óvígðri moldu, en hon var skírð.“ Munnmæli hafa geymst um það, að stór steinn frammi á leirunum fyrir miðjum Skeggjadal lieiti Unnarsteinn og standi hann á gröf hennar. Talið er, að steinn þessi muni eitthvað hafa flutzt til af ísum og ekkert virðist sérkennilegt við hann. Hvammsland hefir án efa verið miklu víðáttumeira á landnámstíð en nú. Það nær ekki að sjó nú, en mun liafa tekið yfir allan Skeggjadal til sjávar og afdalinn Þverdal og efalanst yfir meira land beggja megin dalsins. Tvö býli hafa snemma á öldum byggst af Hvammslandi, Skerðingsstaðir að austanverðu og Hofakur að vestanverðu í dalnum og bæði nær sjó. I tíð Skeggja, sem var 3. maður frá Ólafi feilan og dalurinn er við kenndur, var Hofakur byggður. Þar er þá Gullbrá talin hafa búið, sem Gullbrárgil og Gullbrárfoss eru við kennd á Skeggjadal. Af henni og viðskiptum liennar við Skeggja bónda í Hvammi er þjóðsaga í Þjóðsögum Jóns Árnasonar. Af örnefnum frá landnámstið eru nokkur enn við lýði, sVo sem Krosshólar, Auðartóftir og Auðarnaust. Árið 1931 voru þessar fornminjar friðlýstar á Hvamms- þingi:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Breiðfirðingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Breiðfirðingur
https://timarit.is/publication/1303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.