Breiðfirðingur - 01.04.1944, Blaðsíða 20
18
BREIÐFIRÐINGUR
ÞaS mun leit á jafnviturlega völdum bústað sem
Hvammi, enda var hann valinn af djúpviturri konu. Áður
en Auður valdi sjálfri sér bústað, kannaði bún allt liið
víðáttumikla landnám sitt frá Skraumuhlaupsá sunnan
Hvammsfj arðar yfir Hörðadal, Miðdali, Ilaukadal, Lax-
árdal og Hvammssveit að Dögurðará, sem er lækur mitt á
milli bæjanna Teigs og Ketilsstaða í Hvammssveit. Land-
námið hefir þvi náð yfir nál. 5 suðurhreppa sýslunnar. Á
þessu víðáttumikla svæði hefir þá, eins og nú, margur
hletturinn verið fagur og byggilegui'. Þá liafa verið miklir
skógar um alla Dali, eins og hin mörgu skóganöfn bera
vott um. Þó liefir hinni vitru konu hvergi litist byggilegra
en í Hvammi. Þar hefir þó ekki verið um að ræða hlunnindi
af útræði, eggveri eða sellátrum, en e. t. v. lítilsháttar af
silungi og laxi. Urriði hefir þá verið nokkur í Hvammsá,
eins og hið forna nafn á henni bendir til og lax hefir þá
að likindum gengið eitthvað í Laxá, sem er fremur smá á,
er safnar í sig vötnum úr Sælingsdal og Svínadal og renn-
ur með Krosshólaleiti til sjávar og hefir há án efa legið að
eða i landareign Hvamms. Fyrir hlunnindum hefir Auð-
ur því ekki gengizt, er hún kaus sér hústað í Hvammi. En
hvammurinn við hlíðarfæturna var lilýlegur og fagur og
dalurinn sólríkur og grösugur á láglendi með miklum
skógi i hlíðum. Fegurri og húsældarlegri blett hefir liún
Iivergi fundið í öllu landnáminu, og í því efni missýndist
henni ekki. Flestum, sem-í Hvamm koma að sumarlagi
og nokkurn smekk hafa fyrir náttúrufegurð, virðist liann
einhver fegursti bústaður frá náttúrunnar liendi, er þeir
hafa augum litið hérlendis og þó er þar nú fremur litil
skógarprýði. Bústaðaval fornmanna her mjög víða vott
mn mikinn fegurðarsmekk, hagsýni og framsýni, en óvíða
mun bústaður hera meira lof á landnemann en Hvannnur.
Og slcal honum nú lýst í fám orðum.
Túnið í Hvannni var talið 36 dagsl. að stærð. Þegar ég
kom þangað gaf það af sér 400 hestburði og síðastliðið ár
skilaði það sama töðumagni. Það hefir að vísu orðið fyrir