Breiðfirðingur - 01.04.1945, Side 10
8
BREIÐFIRÐINGUIA
En hvað sem þeinx deilum líður, þá eiga Breiðfirðing-
ar Leif. Ég sá ágælt málverk í fvrra eftir Svein Þórarins-
son af Eiríksstöðum í Haukadal. Þar sjást greinilega tóft-
irnar af bænum, þar sem Leifur fæddist. Slik mynd ætti
einmitt að vera til sýnis i íslenzka sendiráðinu í Wash-
ington, liöfuðborg Bandaríkjanna, ef ekki á þekktu, al-
mennu safni þar. Það mundi hjálpa til að undirstrika
þá augljósu staðreynd, að Leifur Eiríksson var fæddur
íslendingur. Myndastyttan hérna á Skólavörðuholtinu
er sæmileg viðurkenning á því. En það er alveg furðu-
Iegt, hve fáir meðal hermanna, sem dvalið liafa liér, vita
þelta eða kunna skil á þessari sögulegu staðreynd. Þeir
hafa allir lieyrt um Christopher Columhus og ferðir
hans nærri því fimm öldum á eftir Leifi, en sagnir um
ferðir Leifs halda þeir margir, að séu bara óljósar þjóð-
sögur, sem eigi ekki við rök að styðjast. Þetta gildir
ekki um fólk, sem hefir nokkuð lagt sig eftir að kvnna
sér söguna, en fjöldinn allur sýnir ótrúlega fáfræði í
þessum sökum. Ekki getur Breiofirðingafélagið farið
að „kristna lieiminn“ um þennan fræga sveitunga, Leif
heppna, en sannarlega fylgjast Breiðfirðingar sérstak-
lega með þessu metnaðarmáli.
Þegar mér gafst tækifæri til þess i fyrra liaust, að tala
á Breiðfirðingafélagsfundi, minntist ég lítils háttar á
Breiðfirðinga, sem húið hafa í íslenzku byggðinni okkar
i Minnesota í Bandaríkjunum. Ég ætla ekki að fara að
endurtaka það hér, þó að það væri sjálfsagt letingja-
ráð til þess að losna við þann vanda, sem fyrir mér ligg-
ur, að flytja ]ætta útvarpseriiuli í kvöld. Við lxöfum ekki
nema fjórar fjölskvldur úr Dölunum í byggðinni okkar.
Líklega hafa verið fleiri Breiðfirðingar í Dakota-hyggð-
inni, en mestmegnis liafa þeir, er fluttust liéðan, tekið sér
hólfestu i íslendingabygðinni í Kanada. Við höfðum
einn mann af þekktri Dalaætt i hyggðinni okkar vestra,
Sturlaug. Guðbrandsson, son Guðhrandar frá Hvítadal,
bróður Helgu, er dó á Akranesi í fyrra haust, móður Har-