Breiðfirðingur - 01.04.1945, Blaðsíða 60
58
BREIÐFIRÐINGUR
lézt 25. maí 1918. Þórey lifði mann sinn i sextán ár
og mun einnig liafa látizt á Lambastöðum.
Heimildir að því, sem hér er skráð að framan, um
æviatriði Bjarna Þórðarsonar og dvalarstaði hans, eru
að mestu leyti fengnar frá Þórði kaupmanni, syni lians.
Þá er næst að minnast manngildis Bjarna Þórðarsonar.
Þess var áður getið, að Bjarni var vinnumaður séra
Friðriks Eggerz í Akureyjum i níu ár, og mat liann
Bjarna mikils æ síðan, enda bundust þeir vináttubönd-
um, sem ekki brustu til æviloka. Mér þykir vel hlýða
að tilfæra iiér umsögn Friðriks prests um Bjarna, þvi
að mér virðist liún vera sannleikanum samkvæm, það
sem hún nær, þvi að enginn frýði séra Friðrik vits og
glöggskyggni. Honum segist svo frá:
„Bjarni kom til Friðriks frá Pétri Eggerz á Borðeyri.
Plann var gleðimaður og útsláttarlaus, vel hagur á allt
bæði tré og' járn, hvort lieldur var skipa- eður húsa-
gerð, grjót- eður torfveggja, sömuleiðis á silfursmiði,
kopar og söðlasmíði, sjómaður góður og fjár- og sláttu-
maður, slyngur við allan veiðiskap og skytta góð, vef-
ari, fjárglöggur og notalegur í allri meðferð á skepn-
um, sneið föt og saumaði og kunni kvenna vinnu, hann
gat matreitt og mjólkað, ef á þurfti að lialda. Hann gat
einn slátrað stórgrip og gert allt að því, flegið liann og
sundrað innan tveggja tíma. Að því skapi var Bjarni
fjölhæfur, og nálega var ekkert verk, sem ekki mátti
ætla honum, aðgerð á stundaklukkum og fleiru, svo
var hann eftir þvi fljótur og vandvirkur. í stuttu máli
átti Bjarni hvergi sinn líka í öllum verkshætti, livar
sem menn leituðu nær og fjær. Sumir jöfnuðust við
hann í einstökum verkum, en engir voru jafn-fjölhæf-
ir og hann. Hann var frásneiddur diykkjuskap og hóf-
semdarmaður í allan máta, glaðlyndur og skemmtileg-
ur í umgengni, góðsamur og hjálpfús við aðra og greind-
ur vel og skaplesti hafði liann ekki.
Bjarni kvongaðist í Akureyjum 3. júlí 1862 og átti