Breiðfirðingur - 01.04.1945, Blaðsíða 46
44
BREIÐFIRÐINGUR
fræðast eitthvað um landnám sveitar minnar, ef tæki-
færi gæfist. En börnin min lialda ekki Geirdalsnafninu.
Mörg ár liðu svo, að ég' hugsaði lítið um þetta mál, en
þó kom það mér í hug stöku sinnum. Eitt sinn datt mér
í hug, hvernig gæti staðið á þvi, að sveitin væri köllnð
Geiradalshrepinir, en þó væri enginn dalur til við Króks-
fjörð, sem héti Geiradalur. Þetta varð til þess, að vekja
mig til umhugsunar um málið á ný.
Loks náði ég í Landnámu. Það þótti mér nú góður
fengur. Þar stendur: „Þórarinu krókur nam Ivróksfjörð
til Hafrafells frá Króksfjarðarnesi,“ o. s. frv.
Þórarinn hefir húið i Króksfjarðarnesi, enda er það
eina hlunnindajörðin við Króksfjörð, sem nokkru nemur.
Við Króksfjörð standa nú nítján byggðar jarðir; níu
þeirra teljast til Geiradalshrepps, en tíu til Reykhóla-
sveitar.
Króksfjörður er einkennilega lagaður og ólíkur nær-
liggjandi fjörðum, og þótt víðar sé leitað. Hann er, að
öllum líkindum, nefndur eftir liinni einkennilegu lögun
og ber nafn með réttu. En sé svo, þá hefir Þórarinn lík-
lega hlotið viðurnefni sitt af firðinum, eftir að hann nam
þarna land, þótt þetta sé öfugt við það, sem almennt er
álitið.*)
í nafnaskrá aftan við Þorskfirðingasögu, (útg. Sig.
*) Svipaö þessu get ég til, aö sé ineð nöfnin Hallvarður súg-
andi og Súgandafjörður, því allir, sent til þekkja, vita hve mikið
straumsog myndast um miðjan fjörðinn, sem varla mun eiga
sinn líka annars staðar á landinu, og' af því mun hann draga
uafn sitt. Það er næsta ólíklegt, að báðir þessir landnemar hafi
áður haft viðurnefni, sem áttu svona nákvæmlega við einkenni
þeirra fjarða, er þeir námu. Ennfremur vil ég geta þess, að Grett-
issaga segir frá því, að Hallvarður hafi verið í hernaði með Ön-
undi Ófeigssyni, Bálka Blæingssyni og Ormi inum auðga. Þarna
hefir Hallvarður ekkert viðurnefni og þykir mér liklegt, að hann
hafi hlotið það siðar, eins og Önundur félagi hans, er seinna fékk
viðurnefnið tréfótur. Þetta er i upphafi sögunnar, en ])ar strax
er Ormur ritaður með viðurnefni.