Breiðfirðingur - 01.04.1945, Blaðsíða 89
BREIÐFIRÐINGUR
87
ef ólíkar óskir lesendanna og smekkur er látinn ráða.
En ég vænti þess, að góðfúsir lesendur virði það, seni
vel er gert, og fari mildum höndum um hitt, sem miður
fer. Til þess liggur einkum sú ástæða, að þessu riti er
ekki ætlað að hlíta ströngum reglum máls og stíls né
verða vegið á vogarskál hárfínnar hókmenntagagnrýni.
Því er fyrst og fremst ætlað að forða frá gleymsku þeim
fróðleiksmolum, er snerta Breiðafjörð og Breiðfirðinga,
og eru það merkir, að telja vcrður tjón að, ef þeir falla
út á haug gleymskunnar. Þetta vildi ég biðja menn að
hafa í huga, er þeir lesa ritið og skilja það efni, sem
þeir telja birtingarhæft, frá hinu, er kyrrt ætti að liggja.
Ég þakka unnendum ritsins, er sent hafa því línu,
vinsamleg orð og lilýhug'. Okkur, sem störfum við ritið,
er einkar kærkomið að heyra álit lesendanna um kosti
þess og galla, og reynt verður að taka óskir þeirra til
greina, eftir því sem liægt er. Með leyfi bréfritara læt
ég fylgja hér kafla úr bréfi, er ritinu hefir borizt heiman
úr Breiðafjarðarbyggðum.
„Mér líkar ritið vel, og er það ósk mín, að það eigi
langt líf fyrir höndum, að það megi vaxa og verða
skemmtilegur tengiliður milli allra Breiðfirðinga, hvort
sem þeir búa í héruðum Breiðafjai’ðar eða eru fluttir
til bæja eða í borg. Á þessum tímum sundrungar og ó-
friðar er gott til þess að vita, að hægt er að skipa fólki
í stærri eða smærri baráttufylkingar, er hafa það sam-
eiginlegt að eiga eitt fæðingarhérað. Héraðafélög þau,
er stofnuð hafa verið i Reykjavík, eru þau félagasam-
tök, sem verða þess ef til vill megnug i framtíðinni að
leysa erfið og þung vandamál, ef félagsstarfseminni er
beint inn á þær brautir, sem æskilegar eru. Á milli fólks-
ins í sveit og við sjó ríkir oft hinn ósanngjarnasti mis-
skilningur á þeim hagsmunamálum, er báða aðila varða.
Þennan misskilning, sem allajafna er sprottinn af
þekkingarleysi á málunum, á að uppræta með skyn-
samlegu félagsstarfi, er skapar gagnkvæmt traust, skiln-