Breiðfirðingur - 01.04.1945, Blaðsíða 22
20
BREIÐFIRÐINGUR
:t-t
Klakkarnir.
Ljósm.: Guðm. Thoroddsen, prófessor.
þangað tímanlega, og máttu því ekki vera að því að
bíða eftir okkur. Við fórum okkur þvi liægt að útbúa
okkur, kaupa benzín og' smurningsolíu i vélina og mat
og fleiri nauðsynjar fyrir okkur sjálfa. Nú var gott að
liitta Ólaf í Elliðaey þarna við bryggjuna. Hann er öll-
um leiðum kunnugur um Breiðafjörð, og þó að ég hefði
áður farið út í Klakkeyjar frá Stykkishólmi, þá hafði
ég ekki tekið svo eftir siglingaleiðinni, að ég vissi ná-
kvæmlega Iivar fara skyldi, en leiðir um Breiðafjörð
eru sumar óhreinar, sem kunnugt er. Ólafur sagði okk-
ur vel til vegar, eins og lians var von og visa. Hann
benti okkur á sker langt í burtu, með 2 klettum og skarði
á milli, enda heitir skerið Skarði, og sagði að þá væri
rétt farið, ef Skarða bæri í Klofninginn yzt. Þetta var
nú gott og blessað, ef þoka hyldi ekki Klofninginn, en
nú lá liún þar niður í miðjar hlíðar. Annað mið var
austurbrúnin á Súgandisey i auðkennilegt hús i Stykkis-
lióhni, svo nú liöfðum við mið bæði fram og aftur. Þess