Breiðfirðingur - 01.04.1945, Page 30
28
BREIÐFIRÐINGUR
Stuðlaberg
við Bæjarey.
Ljósm.: Guðm. Thor-
oddsen, prófessor.
inum, en þó voru þar jarðfastir steinar eftir, sem stóðu
upp í bakið og víðar, svo að ekki var mjúkt að liggja.
þrátt fyrir dýnur og svefnpoka. Við skriðum í pókana,
en reyndist of kalt til þess að sofna, þangað til við tók-
um tjaldið og breiddum yfir okkur og upp fyrir höfuð.
Þá varð þarna lilýtt undir, og þó að ég svæfi órótt, þá
sofnaði Þrándur von bráðar og svaf óslitið til kl. 10
um morguninn. Eg hafði þá verið nokkra tíma á fót-
um og komið út bátnum, sem lá hátt uppi í fjöru, og
var það erfitt verk fyrir einn.
Rok var nú á norðaustan og bélzt svo allan daginn.
Var kalt víðast hvar, nema þar sem skjól var móti sólu.
en sólskin var við og við um daginn. Við sátum löng-
um í skjólinu og horfðuin yfir til Arneyjar, hvort ekki
kæmi bátur þaðan, en svo leið dagurinn, að enginn kom,
<enda var svo hvasst, að menn lögðu ekki á sjó þann