Breiðfirðingur - 01.04.1945, Page 62
60
BREIÐFIRÐINGUR
það væri liægt að ljúka því á einni klukkustund. Bóndi
taldi það fjarstæðu eina. Pétur segir: „Ég þekki mann,
sem mundi ljúka því aleinn á klukkustund.“ Bóndinn
neitar, en Pétur fullyrðir liið sama. Keppni þessari lauk
með því, að þeir veðjuðu 5 ríkisdölum (10 krónum).
Pétur fer þá til Bjarna og tjáir honum veðmálið. Bjarni
Kirkjufellsfoss í Grundarfirði.
Ljósm.: Þórarinn Sigurðsson.
segir: „Ekki má minna vera en ég reyni þetta, þar eð
þú herð þetta traust til mín.“ Hann fer svo til, svæfir
faolann, flær hann, sundrar skrokknum og ber allt inn
i geymsluhús, læsir síðan og stingur lvklinum í vasa
sinn. Stóðst það á endum, að þá var rétt liðin klukku-
stund frá því hann hóf verkið. Bóndi greiddi veðféð,
dalina fimm, en Pétur réttir þá að Bjarna og segir:
„Ég held, að þú sért bezt kominn að þvi að njóta skild-
inganna þeirra arna.“
Þegar Gunnlaugur sýslumaður Blöndal bjó á Auðs-
haugi á Hjarðarnesi, á árunum 1870—80, byggði liann