Breiðfirðingur - 01.04.1945, Síða 64
BREIÐFIRÐINGUR
62
sauma, línlök, koddaver og sængurver og fleira þess
liáttar og æfði svo konu sina og systur. Árið áður, 1874,
liöfðu raunar komið tvær handsaumavélar þar á Nesið,
önnur að Stað, en hin að Grund. Þar var þá Margrét
systir Þóreyjar. Ég var viðstaddur, þegar Bjarni saum-
aði fyrstu sporin með vél þessari i suðurstofunni á Reyk-
hólum.
Ekki lét Bjarni heldur sig litlu varða framfara- og
menntamál lands síns og þjóðar. Vísa ég í því sambandi
til ritgerðar minnar í Barðstrendingabók hls. 250, Þjóð-
hátíðarveizlan á Rej'kliólum. Þegar í ráði var að halda
fjöhnennan stjórnmálafund á liinum fornlielga stað
Þorskafjarðarþings, Kollabúðareyrum, fór Bjarni til með
húskörlum sínum og ef til vill einhverjum fleirum, og
gerði þar upp gamla búðartóft, 26 álna langa og 6 álna
breiða, setti þar sperrur með langböndum á veggi og
tjaldaði yfir með nýjum baðmullardúk, án þess að hafa
vissu fyrir endurgjaldi. I tjaldhúð þessari var svo fund-
urinn haldinn hinn 20. júní 1891. Voru þar mættir 150
manns úr þremur Vestfjarðasýslunum og nokkrir úr
Dalasýslu. Fundarlialdi þessu er glögglega lýst í blað-
inu Þjóðviljanum 1891, 8. tbl. Þar segir svo meðal annars:
„Til fundarhaldsins hafði verið reist húð á Kollafjarð-
areyrum, 26 álna löng og 6 álna breið, og var notalega
tjölduð og veitti bezta skjól gegn liinni afskaplegu
rigningu og illviðri, sem stóð allan daginn. Bjarni bóndi
Þórðarson á Reykhólum, er annazt hafði um undirbún-
ing allan á fundarstaðnum, hafði þar kaffisölu. Fund-
urinn stóð yfir að kalla samfleytt í 11 klukkustundir.“
í framanskráðri Þjóðviljagrein er þess getið, að Bjarni
liafi liaft kaffisölu á fundinum. Það er rétt hermt, en
það var ekki í fundartjaldinu, heldur öðru tjaldi langt-
um minna. Þórey kona lians sá um veitingar. Kaffi- eður
súkkulaðibollinn með nógu brauði kostaði 25 aura.
Að fundarlokum kvaddi séra Guðmundur frá Gufudal
sér hljóðs og bar fram þá tillögu, að Bjarna vrði ein-