Breiðfirðingur - 01.04.1945, Blaðsíða 82
•80
BREIÐFIRÐINGUB
Söngför Breiðfirðingakórsins
vorið 1945
Sjá myndir á bls. 47 og bls. 65.
I síðasta árgangi Breiðfirðings var sagt nokkuð frá
Breiðfirðingakórnum, starfi lians og fyrirætlunum. En
nú flytjum við þær fréttir af honum, að s.I. vor fór hann
söngför um Dali og Breiðafjörð. Sú ferð varð i alla staði
mjög ánægjuleg bæði fyrir fólkið heima i byggðum
Breiðafjarðar, sem átti ljúfar stundií við söng „farfugl-
anna“, og fyrir söngfélagana, er hvarvetna mættu frá-
bærri gestrisni, alúð og vináttu. Að ferðalokum fannst
ferðafólkinu það ekki geta nógsamlega lofað móttökur
allar, einlægni og hlýhug. Veðrið, sem var dásamlega
fagurt alla dagana, átti gildan þátt í ánægjunni, en ó-
gleymanlegust var gestrisni og vinsemd átthaganna.
Minningarnar úr þessari ferð eru söngfólkinu og öðrum,
er þátt tóku í henni, eins og dýrmætar perlur, er glitra
fegurst, þegar skyggir að.
Lagt var af stað í ferðina úr Beykjavík að morgni hins
22. júní og ekið til Búðardals. Þar var sungið kl. 7 síð-
degis sama dag' fvrir fullu liúsi og við ágætar undir-
tektir áheyrenda. Allar söngskemmtanirnar, er kórinn
liélt, hófust á því, að fararstjórinn, Jón Emil Guðjóns-
son, flutti ávarp og kynnti kórinn, starf Iians og tilgang-
Um þessar mundir vantaði mig eldavél, og varð það að
samkomulagi, að ég fékk vélina, sem Guðmundur Iiafði
haft í eynni. En kvöldið eftir að hún hafði verið flutt til
okkar, varð ég vör við svip Guðmundar. Hann stóð hjá
eldavélinni, og sýndist mér liann áhyggjufullur á svip.
Þennan vetur leið varla sá dagur, að ég sæi ekki svip
Guðmundar. En þegar leið að vori, urðu sýnir þessar fá-
tíðari og hurfu loks með öllu.