Breiðfirðingur - 01.04.1991, Side 16
14
BREIÐFIRÐINGUR
hlunnindi sem áður voru talin, en meðal gripa er „bók stór
í selskinnum forn“, sem gaman væri að vita hvað á stóð.
Bæir sem liggi til kirkjunnar að tíundum og lýsitollum eru
hér taldir 16 í stað 14,19 og gæti verið ritvilla í öðrum hvorum
máldaganum. Síðar eignaðist kirkjan sexærings skipstöðu
árið um kring í Klett (þ. e. Hrísaklett), milli Höfða og Ennis
í Fróðárkirkjusókn ásamt búð og eldiviðarítaki í landi
Hrísa; eignin er tilgreind í kaupbréfi, þegar Daði Arason20
seldi Hrísa.21 Þá galt Sigurður Daðason Snóksdalskirkju
hundrað raftviðar árlega í Sveinatunguskógi í Norðurárdal,
og var bréf um það gert 1505.22
Enn bættist við 21. maí 1524 þegar tekinn var reiknings-
skapur af Daða Guðmundssyni um portion og mortualia,
sem fallið hafði frá því Sigurður Daðason fékk kvittun. Galt
Daði Snóksdalskirkju í reikningsskap vegna Guðmundar,
föður síns, „hálfar eyjar er liggja í Eyrarkirkjusókn og svo
heita: Stafey og Gjarðeyjar tvær, Hrútey og Húsey með
Fléttuey og Hryggjum og Snjófaxey (Snæfoxey) með öllum
þeim hólmum og skerjum sem greindum eyjum fylgja að
fornu og nýju, fyrir fimm hundruð.“23 Þessar eyjar eru sem
kunnugt er undan Skógarströnd og voru nefndar Snóksdals-
eyjar. Segir í Snóksdalslýsingunni 1703 í Jarðabók Árna
Magnússonar og Páls Vídalíns, að þar sé í betra lagi eggver
og dúntekja, einnig slægjur, en allt misjafnt eftir áraskipt-
um.24 Með testamentisbréfi kaus Daði Guðmundsson sínum
moldugum líkama legstað í kirkjunni í Snóksdal, „hver að
helguð er einum góðum guðs ástvin sankti Stefáni“, eins og
stendur í bréfinu, og ekki laust við að sé endurómur úr
fornum sið enda óvíst um sinnaskipti Daða í trúarefnum.
Hann lagði kirkjunni einnig til fimm hundruð í Saurbæjar-
fjöru.25
Enn hefur kirkjan eignast hálfa Þorgeirsstaðahlíð, og
hundrað lamba rekstur á Skarðsfjöll gaf Hannes Björnsson
kirkjunni, dóttursonur Daða.26 Um Geirshlíð var tekinn
vitnisburður 1623, og vitnar Skúli Jónsson, þá við aldur, að
hann hafi aldrei annað heyrt né vitað en það eyðikot Por-