Breiðfirðingur - 01.04.1991, Qupperneq 56
54
BREIÐF'IRÐINGUR
farið af fúa og hrörnun vegna aldurs, enda orðið 100 ára.
I sóknarnefnd þá var formaður Guðmundur Gíslason,
Geirshlíð, Gísli Jónsson, Blönduhlíð, og Guðmundur
Pálmason, Gilsbakka.
Þeim til aðstoðar var kjörin byggingarnefnd. Kosningu
hlutu: Ragnhildur Hafliðadóttir, Hörðubóli, Magnús Krist-
jánsson, Seljalandi, og Guðmundur Baldvinsson, Hamra-
endum.
Fjárhagur kirkjunnar var mjög þröngur. í sjóði voru að-
eins kr. 46.571. Lá fyrst fyrir að safna fé og vinnuloforðum,
og safnaðist verulegt fjármagn strax í sókninni og einnig
vinnuloforð. Guðmundur Gíslason, formaður sóknarnefnd-
ar, hafði umsjón um ráðningu á smið. Ráðinn var kunnur
smiður, Porvaldur Brynjólfsson frá Hrafnabjörgum í Hval-
firði, og má telja það mikið lán að svo vel hæfur maður
skyldi taka verkið að sér. Hófst Þorvaldur strax handa af
sínum alþekkta dugnaði.
Kirkjunni var lyft af grunni og grafið fyrir sökklum og þeir
steyptir. Skipt var um alla máttarviði í suðurhlið, svo og í
austurgafli, og allir gólfbitar settir nýir. Nýtt gólf var sett, og
allur fúi numinn brott úr klæðningu, bæði úti og inni. Pá
voru settar stoðir í framkirkju til styrktar á turni. Gluggar
voru smíðaðir að nýju, og var sett í tvöfalt gler. Einnig voru
hurðir smíðaðar að nýju. Kirkjan hefur verið einangruð að
utan með plasti og pappa, en ysta byrði á veggjum er ál með
innbrenndum lit. A þaki er járn. Bekkir voru breikkaðir og
klæddir svampi og leðurlíki yfir. Málningu annaðist Sigurður
Karlsson málarameistari í Búðardal og frú Þrúður Kristjáns-
dóttir í Búðardal. Reynt var að láta liti og stíl halda sér sem
verið hafði frá því að Guðjón Jónsson málaði hana. Raflögn
annaðist Einar Stefánsson rafvirkjameistari í Búðardal. í
kirkjunni eru fimm fasttengdir ofnar og einn blásari. Átta
rafljósstæði lýsa húsið. Altarisbúnað, bikar, patínu og ljósa-
stikur, tók Guðbrandur Jezoreski gullsmiður til aðgjörða, og
eru þessir gripir nú sem nýgerðir. Rykkilín er saumað af frú