Breiðfirðingur - 01.04.1991, Side 50
48
BREIÐFIRÐINGUR
Kristján Geiteyingur var afabróðir Hjartar frá Álfatröðum,
sonur Katrínar Guðmundsdóttur frá Fremri-Hundadal,
móður Hjartar Ögmundssonar á Ósi og síðar í Öxney, afa
Hjartar Ögmundssonar í Álfatröðum.
Umsjón með smíði Snóksdalskirkju og útvegun efnis
hafði Kristján Kristjánsson á Dunk, og er það metið til 60
króna í tíunda og síðasta lið byggingarreikningsins. Um
þennan lið segir prófastur í skýringum sem hann lét færa
með reikningnum til biskups:
Við N° fO. Þessi útgjaldagrein hefir verið samþykkt af eig-
endum kirkjunnar, erfingjum Kristjáns heitins Guð-
brandssonar á Gunnarsstöðum, og er að mínu áliti í alla
staði sanngjörn, eins og erfingjarnir einnig, það mér fram-
ast er kunnugt, eru vel ánægðir bæði með bygginguna og
byggingarkostnaðinn. Það má líka óhætt fullyrða, að þessi
kirkja er bæði prýðilega vönduð og hin snotrasta af öllum
kirkjum í þessu héraði, og enginn hefði heldur verið fær
um að koma henni upp jafnvandaðri fyrir minna verð en
Kristján umsjónarmaður, sem bæði er hinn útsjónarsam-
asti og eftirlitasamasti í öllu tilliti. Að kirkjan sé svo ódýr,
sem framast má verða, sést einnig, þegar þess er gætt, að
hún kostaði aðeins 3775.53 kr. þar sem Sauðafellskirkja,
sem aðeins er lítið eitt stærri kostaði 4689 kr., þó að vita-
skuld sé að tillit verður að hafa til þess að þá var viður dýr-
ari og margt örðugra við hana, eftir sem á stóð.
Þannig farast Jóni orð. í athugasemdum hans kemur fram að
viður til kirkjubyggingarinnar hefur verið fluttur sjóveg inn
á móts við Gunnarsstaði, og tók umsjónarmaður þátt í sjó-
vegsflutningnum til að komast hjá skemmdum á viðnum af
drætti.
Breytingar á fyrri tíð
Fljótlega varð sú breyting á kirkjunni að sett var járnþak í
stað rennisúðar. Það var gert vorið 1888 og eru skjöl um það
í bréfum prófasts til biskups það ár. Guðbrandur Jörunds-
son, sonur Jörundar Guðbrandssonar á Hólmlátri, lagði