Breiðfirðingur - 01.04.1991, Síða 24
22
BRF.IÐFIRÐINGUR
1541,40 og annað árið eftir hjá konungi Kristjáni þriðja.41
Eftir Hvammsdóm 1548 hefur Daði leitað til Kristjáns skrif-
ara, umboðsmanns hirðstjóra, og kvartað undan aðförum
Jóns biskups og dómi. Er svo að sjá sem Daði hafi mælst til
þess að Kristján riði vestur með flokk manna og léti ganga
dóm um Jón biskup og fylgjara hans. Hefur Daði fært til rán
á eignum sínum. Þessu vísar Kristján skrifari frá sér og til
lögmanns, jafnframt því sem hann hliðrar sér hjá að gefa
Daða nýtt verndarbréf, bendir á að það yrði ekki sterkara en
verndarbréf konungs. Ræður hann Daða til að láta allt
standa í stilli til alþingis að sumri komanda, en hafa þó á sér
góðan vara. F>ví fylgdi Daði.
Með vorskipum 1549 bárust bréf til íslands, og var Jón
biskup Arason lýstur útlægur og friðlaus. Veturinn eftir var
Marteinn biskup í haldi fyrir norðan. Þá fóru bréf á milli
Daða bónda í Snóksdal og Kristjáns skrifara. Hafði Daði
þær fréttir af Marteini að hann væri „í góðu haldi með öl og
mat í Möðrufelli hjá Ara Jónssyni“ Arasonar biskups, og
hafði Daði heyrt að biskup Jón og Marteinn vildu halda fund
á Þingeyrum ákveðinn dag, ef verða mætti til sætta, svo að
Marteinn kæmist aftur að stóli sínum. Gegn þessu leggst
Kristján skrifari mjög ákveðið og hyggur að stutta stund
verði hönd höggi fegin, þótt Marteinn biskup sé nú fanginn;
ekki hafi biskup Jón „þar fyrir Danmörk og Noreg í burtu.“
Má ljóst vera að hverju konungsfulltrúinn stefnir. Þá hafði
Daða dottið í hug að sættast við Jón biskup sín vegna um þá
bannsetning, sem hann var í. Um það segir Kristján skrifari
minna, en ræður þó Daða til að hugsa sig rækilega um,42
enda varð ekki af sættum.
Vorið 1550 barst konungsbréf í Snóksdal til Daða Guð-
mundssonar og var raunar einnig skrifað mági hans, Pétri
Einarssyni, bróður herra Marteins. Um Pétur segir í gömlu
riti, að hann var lengi vel látinn af dönskum, og er bætt við:
„halda sumir að hann hafi lítilega verið hollur landinu.“43
Flytur bréfið þau skilaboð að konungur hafi boðið Laurenz-
íusi Mule, hirðstjóra, að handtaka Jón biskup og hafa í