Breiðfirðingur - 01.04.1991, Blaðsíða 193
SKJALASÖFNUN í DÖLUM
191
Fæðingabók frá ljósmóður.
Póstsendingabók frá Salthólmavík 1910-1957.
Gjörðabók svonefnds Laxfiskaveiðifélags Dalasýslu frá
1885-91.
Samkvæmt reglugjörð eiga eftirfarandi skjalagögn að varð-
veitast á héraðsskjalasöfnum:
Kirkjubækur og manntalsskrár, hreppsbækur hverskonar,
gerðabækur búnaðarfélaga, ungmennafélaga, kvenfélaga,
sjúkrasamlaga, lestrarfélaga, skólanefnda, skógræktarfé-
laga, fóðurbirgðafélaga, nautgripa- og sauðfjárræktarfélaga,
sóknarnefnda, sáttanefnda, svo og forðagæslubækur.
Auk þess er mikill fengur að fá bréfasöfn, leyfisbréf hvers-
konar, dagbækur, landamerkjabréf, niðjatöl og æviskrár,
gamlan kveðskap og margháttaðan annan fróðleik, þótt hér
sé ekki upptalinn.
Skráð hefur verið í aðfangabók jafnóðum og gögn hafa
borist en frekari skráning bíður seinni tíma þegar eiginleg
starfsemi safnsins hefst. - Af hálfu sýslunnar hefur nú verið
samið við aðila um húsnæði fyrir safnið í Stjórnsýsluhúsinu
í Búðardal. Er það eldtrygg geymsla og vinnuherbergi.
Ég vil beina því til burtflutts Dalafólks, t.d. í Breiðfirð-
ingafélaginu, hvort það hefur ekki í fórum sínum einhver
gömul handrit eða skjalagögn, sem það teldi vera best varð-
veitt í Héraðsskjalsafni Dalamanna í Búðardal. - Ég er alltaf
til viðræðu um þau efni, hvort heldur er hér í Reykjavík eða
fyrir vestan. Síminn er 91-26468 og 93-41369.
Að síðustu færi ég öllum bestu þakkir, sem á einn eða
annan hátt hafa veitt mér liðsinni við skjalasöfnunina.