Breiðfirðingur - 01.04.1998, Blaðsíða 37
HLUTVERK ÁTTHAGAFÉLAGA
35
í þessu samhengi má minna á hin umdeildu sveitarstjómar-
lög, sem samþykkt voru á síðasta alþingi, þar sem hálendi
Islands er meðal annars skipt upp í 42 „tertusneiðar" í stað
þess að hafa allt hálendið eitt stjómsýslusvæði. Við þær um-
ræður fundu menn glöggt fyrir tvenns konar tilfinningum. I
aðra röndina velþóknun yfir því að meirihluti, „Reykjavíkur-
valdsins“, skyldi ekki fá að ráða öllu á hálendinu, en að hinu
leytinu mikinn og tímabæran ótta við að fámenn og fátæk
sveitarfélög gætu hæglega freistast til að leyfa alls konar fyrir-
bæmm hins verstu umhverfisspjöll fyrir skammvinnan hagnað.
Vegna frekari lagasetninga gæti í þessu sambandi verið full
ástæða til að velta fyrir sér hugmyndum að nýrri kjördæmaskipan
sem ævinlega em á döfinni fyrir hverjar alþingiskosningar. Nýlega
hefur komið fram utan alþingis skynsamleg tillaga, sem ætti að
geta þjónað báðum sjónarmiðum. Hún er í sem stystu máli á þá
lund að alþingi verði aftur skipt í tvær deildir. Til neðri deildar
væri landið eitt kjördæmi með hlutfallskosningu, en til efri deildar
væm kjömir tveir þingmenn úr hverju þeirra kjördæma sem nú
gilda, án þess að litið væri til fólksfjölda. Lög yrðu að öðlast sam-
þykki í báðum deildum. (Páll Bergþórsson: Sanngjöm kjördæma-
skipan. Lesbók Mbl. 30. maí 1998, bls. 3).
Áðurnefndar deilur um hálendið snerta Breiðafjörð vissu-
lega ekki beinlínis. Þar er heldur ekki mikil hætta á náttúru-
spjöllum vegna orkuvinnslu, nema menn vildu taka upp á því
að virkja hina óendanlegu sjávarfallastrauma í mynni Hvamms-
fjarðar. Á hinn bóginn þarf að gæta vel að lífríki og mannvist-
arleifum þessa sögufræga svæðis.
Fyrir nokkrum árum skipaði alþingi sérstaka Breiðafjarðar-
nefnd í þessu skyni. Það er út af fyrir sig góðra gjalda vert, og
á fundum nefndarinnar hefur smám saman orðið ljósara en
áður, hvað þarf að gera og við hvaða vandamál er að stríða.
Helsta vandamálið er að sjálfsögðu, að nefndin hefur ekkert
fjármagn til ráðstöfunar til að gera þótt ekki væri nema brot af
því sem gera þarf. Hér skal að lokum minnt á nokkur atriði á
sviði minjaverndar sem til greina kæmi að félagið og nefndin
hygðu að.