Breiðfirðingur - 01.04.1998, Blaðsíða 178
176
BREIÐFIRÐINGUR
gott félagsheimili, Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14 í Reykjavík
sem keypt var fyrir andvirði Breiðfirðingabúðarinnar gömlu
og vígt á haustmánuðum 1988. Húsnæðið nýtist starfseminni
þannig að þar er alltaf eitthvað að gerast flest kvöld vikunnar
yfir vetrarmánuðina auk þess sem það er leigt út til samkomu-
og veisluhalda. Ur okkar starfi nú má nefna m.a. dansleiki,
vetrarfagnað, vorfagnað, þorrablót og árshátíð, aðventudag,
jólafagnað, dag aldraðra, félagsvist, danskennslu, söng og kór-
starf og fundaraðstöðu svo eitthvað sé nefnt. I vetur stóðu sex
átthagafélög fyrir spurningakeppni sem fram fór að viðstöddu
fjölmenni á Hótel Sögu og vorum við þátttakendur í þeirri
keppni. Ahugi er fyrir áframhaldandi samvinnu í þessa veru
enda eru öll átthagafélög að vinna að svipuðu félagsstarfi. Eitt
má nefna sérstaklega en það er að nú á haustmánuðum 1997
var Breiðfirðingakórinn endurvakinn að nýju með mjög öflug-
um hætti og eru kórfélagar nú milli 50-60 talsins. Þar er áhugi
mikill og takmarkið vonandi sett hátt með góðum söngstjóra
sem leiðir þennan áhugasama hóp. Allt þetta starf hefur geng-
ið mjög vel á starfsárinu.
I þessum félagsskap eins og öðrum verðum við ávallt að
vera vel vakandi fyrir nýjungum sem verða mega til þess að
efla starfið og byggja jafnframt á þeirri hugsjón sem stofnað
var til í upphafi. Eitt af markmiðum félagsins er einmitt að
styrkja skuli eftir megni mál sem líta til menningar, framfara
og hagsbóta heima í héraði og er það góðra gjalda vert að eftir
heimabyggð sé munað með tilliti til þess.
Helsta markmið okkar á 60. afmælisárinu er fjölgun félaga.
Þegar horft er til framtíðar eins og nauðsynlegt er að gera, þá
er það ljóst að við verðum að fá unga fólkið til liðs við okkur en
allir þeir geta orðið félagar sem eiga ættir að rekja eða tengjast
byggðarlaginu á einhvern hátt og taka virkan þátt í þessu
skemmtilega starfi með okkur. Því fleiri sem félagsmenn eru,
því sterkari verðum við í öllu okkar starfi.
Félagsstarf seinnipart starfsársins einkenndist nokkuð af
afmæli félagsins og þótti því tilhlýðilegt að fara í sumarferð
vestur í Dali þar sem við áttum sérstaklega góða helgi 26.-28.