Breiðfirðingur - 01.04.1998, Blaðsíða 48
46
BREIÐFIRÐINGUR
urferð. Ekki var um aðra leið að velja þá en fara Haukadals-
skarð. Þó skarðið sé hvorki langur fjallvegur né hár, getur það
verið örðugt yfirferðar á vetri. Gengið hafði á með byljum og
fannkomu, en þó var þokkaleg færð í byggð. Jakobína, ekkja
Jóns og tengdadóttir Kristínar, bjó þetta út á Mjóabóli með
bömum sínum.
Olafur, elstur þriggja bræðra, sem heima voru á Mjóabóli,
kemur að Giljalandi og er að fá menn til farar norður. Ég geng
með honum að Krossi, en þar bjó þá Guðmundur P. Asmunds-
son, er áður bjó á Þormóðsdal í Mosfellssveit.
Þegar að Krossi kom, vill svo til að Guðmundur er illa
haldinn af gigt, þá segir Olafur: „Fyrst þú ert svona, þarf ég
ekki að bera upp erindið.“ „Jú“, segir Guðmundur, „láttu mig
heyra hvað þú vildir mér, Óli minn.“ Ég ætlaði að biðja þig að
aðstoða okkur við að flytja líkkistu ömmu minnar norður á
Skarðið í fyrramálið“. „Ég verð ef til vill betri á morgun, já,
ég verð betri á morgun,“ sagði Guðmundur og sú varð raunin
á. Morguninn eftir var fannkoma og ekki fjallveður. Var þess
vegna för frestað og sent að Leikskálum, þar var þá símstöð,
og látið vita norður í Hrútafjörð. Það hafði verið ákveðið að
Hrútfirðingarnir kæmu til móts við Haukdæli á Haukadals-
skarði, svo að þeir gætu farið vestur aftur samdægurs. Fljót-
lega hætti að snjóa og var þá ákveðið að leggja í hann. Varð
nú að senda aftur að Leikskálum og láta vita norður.
Þetta olli því, að seinna var af stað farið en ráðgert var.
Hrútfirðingar töfðust þó meir. Þessir menn fóru úr Haukadal:
Guðmundur Asmundsson, bóndi, Krossi. Guðjón G. Sigurðs-
son, Krossi, Karl Jónsson, Mjóahóli, Arngrímur Magnússon,
bóndi, Smyrlhóli, Jóhannes Jónsson, bóndi, Giljalandi. Þessir
menn eru nú látnir. Auk þeirra fóru: Ólafur Jónsson, Mjóabóli,
Guðmundur Guðmundsson, bóndi, Núpi, Guðmundur Bene-
diktsson, Hömrum og sá er þessar línur setur á blað. Fjall-
vegurinn um Haukadalsskarð er talinn hefjast á Réttareyri og
liggur að Melum í Hrútafirði. Frá Mjóabóli að Réttareyri eru 6
km og um 4 km lengra frá þeim er lengst komu að. Kistan var
bundin á sleða og hjúpuð teppum. Tveir hestar voru með í för