Breiðfirðingur - 01.04.2002, Blaðsíða 90
88
BREIÐFIRÐINGUR
svo ekki sé minnst á að elda uppréttur. Það er kalt að líta víkina
fögru fyrir svefninn, brimið á ægifagurri víkinni, ströndin sem
geymir alla sjóreknu drumbana og rekaviðinn. Sérstakt að berja
þetta augum. Og enn skríðum við ofan í pokana okkar og segj-
um góða nótt. Þvíiík ferð þar sem veður og vindar léku á okkur
en ekki við okkur það sem af er að minnsta kosti.
24.júlí. Frá Bolungarvík til Furufjarðar
Vaknað í Bolungarvík hjá Vilmundi bónda og allt gert klárt
fyrir daginn. Eldum hafragraut og veður var mjög kalt, bann-
sett rok og úrkoma. Okkur er ekkert að vanbúnaði, kveðjum
Bolungarvík og Vilmund. Tökum strikið og göngum í okkur
þokkalegan hita, förum hjá Drangsnesi sem er oddinn á milli
Bolungarvíkur og Furufjarðar. Þar er heljarmikill drangur sem
trónir yfir fjörunni og lítur til hafs. Við hröðum för okkar þar
sem Bolungarvíkur ófærurnar eru enn eftir, og sýnist okkur
vera að falla all hressileg að. Það er mjög stórgrýtt og flughált
í fjörunni og yfirferðin mikil. Þá sjáum við í Furufjörðinn, en
beint á móti oddanum er bjargið Kanna sem er stór og fallegur
klettadrangur yst hinum megin við fjörðinn. Ofærurnar eru
framundan en það er ekki að tilefnislausu að það nafn er
notað. Það kemur í ljós að við erum í seinna lagi, bæði er stór-
steymt eins og okkur var farið að gruna og ólgusjór. Ekki var
um neitt annað að ræða en að láta vaða og komast fyrir þetta,
og það fljótt. Það má með sanni segja að þama höfum við ver-
ið á tæpasta vaðinu, þvílíkt í sjóinn og hrikalegir klettamir
sem engan grið gefa, veður grátt og þungt yfir. Eg fór ófæruna
þrisvar þennan dag. Síðan var að koma sér í skóna aftur og
komast í skipbrotsmannaskýlið sem er í mynni Furufjarðar.
Það tókst og nú var að berja hita í mannskapinn og löguð var
hressileg kjötsúpa. Það hljóp hiti í kinn og sinn við súpuna og
að vera komin í húskofann, þá var á áætlun að fara yfir Skor-
arheiði og í Hrafnfjörð en fyrst ætluðum við að koma við í
bænum Furufirði sem er stórt bjálkahús er stendur mitt í firð-
inum, reisulegt hús og búsældarlegt á að líta. Athuga átti hvort