Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2018, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2018, Blaðsíða 33
Sumarnámskeið 18. maí 2018 KYNNINGARBLAÐ „Hér fá allir að vera eins og þeim líður best“ Kramhúsið á skólavörðustíg er sívinsælt og þar er og hefur alla tíð verið rekin sannkölluð grasrótarstarfsemi í hreyfingu og listviðburðum. í mörg ár hefur verið boðið upp á skapandi sumarnám- skeið, annars vegar fyrir börn og hins vegar fyrir kennara. „Kramhúsið var stofnað árið 1984 og hefur síðan þá verið á sama stað á skólavörðustíg, með sömu eigendur og þótt mikið af kennurum komi og fari þá má finna nokkra frá upphafs- dögum eða nemendur sem síðar fóru að kenna,“ segir vigdís arna, verk- efnastýra Kramhússins. „margir þeirra sem byrjuðu að stunda húsið á þeim tíma eru hér líka ennþá, en önnur og þriðja kynslóð er líka að koma til okkar. fjölbreytnin er gríðarleg hér í námskeiðum, sem stafar kannski af því að þegar Kram- húsið var stofnað á sínum tíma þá vantaði rými fyrir alls konar dans- og jaðarlistviðburði og enn í dag er mikil eftirspurn eftir rými fyrir grasrótina, sérstaklega miðsvæðis. þeir sem koma og kynnast Kram- húsinu elska þann gamla sjarma sem hér er, þar sem hver og einn fær að vera eins og þeim líður best. „okkar mottó er að hér kemur fólk til að vera, en ekki til að verða.“ Skapandi og hvetjandi sumarnám- skeið fyrir börn boðið er upp á sumarnámskeið fyrir börn í júní, sem eru aldursskipt: yngri börnin, 7–9 ára, eru fyrir hádegi og eldri börnin, 10–12 ára, eru eftir hádegi. Hvert námskeið stendur í viku og þátttakendur geta tekið eina, tvær eða jafnvel þrjár vikur þar sem lagt verður upp með mismunandi verkefni í hverri viku. „við státum okkur af því og leggjum alltaf mikla áherslu á að fá með okkur gæðakennara hverju sinni og erum ansi stoltar og ánægðar með þá úrvalskennara sem verða með okkur í sumar: magga stína blöndal sér um tónlistina, Halla margrét Jóhann- esdóttir sér um skapandi skrif, ásrún magnúsdóttir sér um dansinn og alda lóa leifsdóttir kemur inn með nýjan vinkil, sem er ljósmyndun og fjölmiðl- ar,“ segir vigdís arna. „í sameiningu munu þær sjá um að leysa listina úr álögum og finna leiðir til að sameina ólík listform og þær munu aðstoða börnin við að búa til verk úr alls konar. sem dæmi má nefna að barn gæti skapað dansverk undir áhrifum af styttu úr nágranna- garði eða skrifað sögu og sýnt hana með dansi. börnin læra að opna hugann og horfa á list á annan hátt. þau fara í könnunarleiðangra um nágrennið, setja upp önnur gleraugu en við erum með dags daglega og sjá hönnunina og listina sem er allt í kringum okkur. námskeiðin eru skapandi og kapp lagt á að börnin njóti sín og fái að vera glöð og sátt við sitt hlutverk. þau velja sitt hlutverk og sína þátttöku en allir eru með og fá jákvæða hvatn- ingu. sumarnámskeiðin hafa verið hjá okkur í mörg ár og hér hefur safn- ast saman mikil þekking og reynsla. námskeið hafa ávallt verið með sama formi; á þeim kafa börnin í ómælis- brunn eigin hugarflugs og finna listina í daglega lífinu.“ Sumarnámskeið orkugjafi fyrir kennara í ágúst býður Kramhúsið upp á sambærileg námskeið fyrir kennara. „Kennarar verða nemendur og sækja sér hvatningu frá skapandi fólki sem notar oft aðrar leiðir og óakademísk- ari í sinni miðlun. þannig losnar um höft hugans og kennarar sækja sér orku, gleði og hugmyndir fyrir kom- andi vetur,“ segir vigdís arna. „við höfum dæmi um kennara sem sjá fram á alveg nýjar leiðir til að koma sínu fagi á framfæri. listir og stærð- fræði eiga til dæmis góða samleið og það eru ekki allir sem sjá það. nám- skeið eins og kennaranámskeið Kram- hússins opna á nýjar leiðir til kennslu og við höfum í gegnum árin oft fengið sömu kennarana til okkar og margir leikskólar senda árlega einn fulltrúa sem síðan miðlar hugmyndum til samstarfsfólks.“ Kramhúsið er á skólavörðustíg 12 (gengið inn frá bergstaðastræti), síminn er 551-5103 og netfangið er kramhusid@kramhusid.is. nánari upplýsingar má líka finna á heimasíð- unni kramhusid.is Kramhúsið Skólavörðustíg: Skapandi sumarnámskeið fyrir börn og kennara
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.