Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2018, Blaðsíða 54

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2018, Blaðsíða 54
Barnið 18. maí 2018KYNNINGARBLAÐ Chicco.is: Fallegar gæðavörur fyrir börn og foreldra Snuð og bílStólar og allt þar á milli Fyrirtækið Chicco var stofnað árið 1958 af ítal- anum Cavaliere del lavoro Pietro Catelli, sem langaði að fagna eins árs afmæli sonar síns, Enrico. Sonurinn bar gælunafnið Chicco og var fyrirtækið nefnt eftir honum. Chicco framleiðir allar vörur í sam- starfi við fagaðila og sérfræðinga, hvern á sínu sviði: sem dæmi barna- lækna og iðjuþjálfa. Chicco er með eigin rannsóknarstofu og leggur mikla áherslu á öryggi, að vörurnar séu eiturfríar og öruggar fyrir börnin. „Chicco-vörurnar hafa verið seldar í mörg ár hér á landi og eru til vörur frá snuðum upp í bílstóla og allt þar á milli,“ segir Elísabet ingvarsdóttir hjá gullskógum ehf., sem selur Chicco- vörurnar. „Chicco framleiðir sérstakar flugnafælur sem eru ætlaðar öllum aldri, en líka ungbörnum og barns- hafandi konum. þær eru til í spreyi, rolloni og geli og einnig er til afterbite sem dugar á öll bit. Chicco framleiðir einnig tvær gerðir af flugnafæl- um með batteríum, önnur er með klemmu og hægt að festa hana á barnavagninn. Hana má þó nota fyrir aðra en börn. Ég set hana á buxna- strenginn þegar ég fer í göngu, einnig er hægt að festa hann á bakpoka/ golfpoka og hún virkar í 3 metra radíus í kringum viðkomandi. Hin flugnafælan er stungin í rafmagn og hún virkar í 25 fm herbergi. þær virka á mýið hér heima líka. það er ekkert annað fyrirtæki sem framleið- ir barnavörur sem framleiðir svona vörur.“ „next to me-vöggurnar eru með dýnu sem er öndunarefni í og hana er hægt að hafa alveg upp við rúm for- eldra. Hægt er að opna aðra hliðina, þannig að barnið liggur nálægt for- eldrum sínum, en er samt í eigin rúmi. 11 hækkanir eru á rúm- inu, þannig að það léttir undir með foreldrum þegar barnið er lagt niður eða tekið upp. Einnig er hægt að hækka upp höfðalagið. Vaggan er á hjólum, hægt að setja hana á ruggu og einnig er hægt að pakka henni þannig að lítið fari fyrir henni og taka hana með ef barnið gistir annars staðar. taska fylgir með vöggunni.“ „bobby-meðgöngupúðinn og bobby-gjafapúðinn njóta einnig sér- stöðu. gjafapúðinn hefur fengið verð- laun í bandaríkjunum á hverju ári frá árinu 2008. gjafapúðinn liggur alveg að móðurinni eða þeim fullorðna, hvort sem barnið er á brjósti eða á pela og barnið liggur í réttri stöðu. axlir þess fullorðna eru í réttri stöðu og afslappaðar. Púðinn er fylltur með trefjum og rafmagnar ekki.“ „meðgöngupúðinn, sem er mjög vinsæll, er þrískiptur og geta þung- aðar konur notað hann í heild, eða hvern hluta fyrir sig. Hægt er að hafa einn hluta undir kúlunni, annan undir höfðinu. Púðinn hentar einnig fyrir aðra en þungaðar konur.“ liteWay-kerran er ein gerð af kerrum sem Chicco framleiðir og er margverðlaunuð. Hún er aðeins 7,5 kg, úr áli, létt og meðfærileg. Hún fer í svefnstellingu og er með bólstr- uðu fimm punkta belti. Kerrupoki og regnplast fylgir. Kerran leggst saman með einu hand- taki eins og regnhlíf. það er hægt að halda á barninu og setja hana saman eða taka hana upp um leið.“ „twist-stóllinn er fyrir börn frá 12 mánaða. Stóllinn hefur verið mjög vinsæll, hann er léttur og mín fimm ára notar sinn stól ennþá. Hægt er að nota hann sem legubekk og hafa fæturna uppi, eða halla bakinu aftur og þá er stóllinn orðinn sófi. það er gaman fyrir börnin að hafa sitt eigið, að eiga sinn eigin stól og þurfa ekki að príla upp í stóla eða sófa þeirra fullorðnu.“ „Chicco baby walker, gamli góði formakassinn, í uppfærðu útliti. Hann er með batteríum og alla vega hljóð heyrast þegar kúlurnar eru settar í og spilar lag á meðan barnið ýtir, sem eflir öll skilningarvit hjá barninu. Chicco hugsar líka um fullorðna fólkið og því er möguleiki á að slökkva á hljóðunum. Einstak- lega fallegt leikfang sem hjálpar barninu að taka fyrstu skrefin í öryggi. „Pocket relax-ömmu- stóllinn er með allar stillingar sem ömmustóll þarf að hafa, honum má rugga eða festa hann. En síðan má pakka hon- um saman á fyrirferðarlítinn hátt og setja í samlitan poka sem fylgir með. Einstaklega þægilegur stóll sem hentar mjög vel fyrir ferðalög og líka fyrir mig sem ömmu sem vil geta sett hann inn í skáp þegar ömmubörnin eru ekki í heimsókn. þetta er ný og önnur hugsun í ömmustólunum klass- ísku.“ „Disney-óróinn er mjög fallegur og hægt að varpa bambamynd upp á vegg eða loft. 15 mínútur af klassískri tónlist, dýrin snúast í hring eða eru kyrr. það sem ég vissi ekki um óróa er að þeir eru notaðir til að núllstilla höfuð barnsins. Eitt af mínum ömmu- börnum fæddist í noregi og var tekið með klukku. þegar börn eru tekin með klukku í noregi fara þau sjálfkrafa til sjúkraþjálfara. álagið er mikið á höfuðið og barnið leitast við að snúa sér og hlífa höfðinu. órói er notaður til að núllstilla höfuðið.“ Heimasíðan chicco.is er opin allan sólarhringinn og svo er hægt að fylgj- ast með okkur á Face- book: Chicco á Íslandi og Instragam: chiccoisland. Við erum á Smiðjuvegi 4C og er opið virka daga frá kl. 8–16.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.