Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2018, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2018, Blaðsíða 10
10 18. maí 2018fréttir Gátan um hnit Sindra leySt S indri Þór Stefánsson, sem yfirgaf fangelsið á Sogni og lýst var eftir um allan heim, er kominn aftur til Íslands. Hann opnaði sig upp á gátt í viðtali við Harmageddon og hélt þar fram að hann hefði verið frjáls. Yfirvöld kröfðust gæsluvarðhalds yfir Sindra en dómari ákvað að taka sér sólar- hring til að hugsa málið. Var farið með Sindra upp á Sogn og honum greint frá því að yfirgæfi hann fang- elsið yrði hann handtekinn. Sindri sagði sjálfur í Harmageddon að til að mega halda honum samkvæmt lögum hefði átt að handtaka Sindra og vista hann í sólarhring í fang- elsi. „Það er borðleggjandi að ég var frjáls minna ferða.“ Má færa rök fyrir því að fangelsismálayfirvöld hafi ákveðið að sýna mýkri hlið og bjóða Sindra að vera á Sogni fram að þeim tíma í stað þess að kúldrast í ömurlegum klefa á Hverfisgötu. Þá sagði Sindri að það hefði komið honum á óvart að vera kall- aður strokufangi og bjóst ekki við að fjallað yrði um hann í fjölmiðl- um. Lögregla lýsti eftir Sindra þar sem þeir höfðu greint honum frá því að ef hann færi frá Sogni yrði hann handtekinn og lýst eftir hon- um. Það stóð eins og stafur á bók og ósköp eðlilegt að fjölmiðlar fjölluðu um ferðalag hans með forsætisráðherra til Svíþjóðar. En Sindri, sem þykir með eindæm- um gáfaður og snjall og hefur ver- ið hampað af stórum hluta þjóðar- innar, fékk óvæntar gleðifréttir í vikunni þegar dróni sem hann hafði lýst eftir kom í leitirnar. DV fékk ábendingu um undarleg hnit á þeim tíma sem Sindra var leitað og voru þau sögð tengjast honum. Töldu sumir að hnitin myndu vísa á tölvurnar sem lýst hafði verið eft- ir. En um flökkusögu var að ræða, ein af mörgum um þennan unga vaska mann. Seinna birti konan hans mynd í grúppu þar sem hún auglýsti eftir svörtum afar verð- mætum dróna. Í grúppunni Drón- ar á Íslandi birti einn meðlimur mynd af löskuðum dróna og von- aði að eigandinn myndi gefa sig fram en á drónanum var hágæða- myndavél. Sindri svaraði kallinu og kvaðst viss um að hann ætti gripinn dýrmæta. „Ég var að æfa næturflug með nýju XT cameruna þegar ég missti GPS samband. […] Það var leitað alla nóttina en svo byrjaði að snjóa og snjóaði næstu daga. Ég gafst upp þegar ég var kominn með snjóinn upp í mitti.“ Kvaðst Sindri hafa tilkynnt til lög- reglu að hann hefði tapað drónan- um. DV hafði samband við Sindra til að heyra frekar af þessum gleði- tíðindum. Sindri vildi ekki tjá sig við DV og neitaði að hann ætti drón- ann eða hefði átt í samskiptum við fólk í grúppunni og ítrekaði það þrátt fyrir að hon- um væri greint frá því að DV hefði skjáskot af þeim samræðum. „Nei, það var ekki ég. Þetta hefur ver- ið einhver annar,“ sagði Sindri. n Kristjón Kormákur Guðjónsson kristjon@dv.is Spádómurinn um Eyþór Á árum áður fylgdi hliðar- blaðið Fókus með DV. Um var að ræða feiki- vinsælt blað sem fjallaði um margs konar málefni ungs fólks. Dálkurinn Hverjir voru hvar naut mikilla vinsælda en þar var farið yfir hvaða þekktu Íslendingar hefðu látið sjá sig úti á lífinu undangengna helgi. Þann 19. október 2001 birtist eftirfarandi moli í blað- inu: „Astró var hertekinn af knattspyrnumönnum og -kon- um að loknu lokahófi KSÍ en þar voru gömlu kempurnar Guð- mundur Torfa, Siggi Grétars og Sævar Jóns Leonard. Þorgrím- ur Þráins gekk svo um og bað menn að drepa í á með- an Arnór Guðjohnsen blandaði geði við Móeiði og Eyþór Arnalds, verð- andi borgarstjóra.“ Nú reynir á hvort ónefndur blaðamaður Fókus reyn- ist sannspár og þá þarf greinilega að lúslesa blaðið í leit að fleiri vísbendingum um framtíð- ina. Margir sárir eftir skróp Tommy T ommy Robinson, stofnandi English Defense League, átti að halda erindi hérna á Ís- landi í vikunni. Vakur, Samtök um evrópska menningu, stóðu fyrir ráð- stefnunni sem var með yfir- skriftinni Fjölmenningin í Evrópu: Vandamál og lausnir. Upp kom því miður stórt vanda- mál þar sem Tommy kom aldrei til landsins. Missti hann af fyrsta fluginu þegar dekk sprakk á bílnum hans og missti svo að seinna fluginu vegna látins ætt- ingja að sögn Sigurfreys Jónassonar. „Hann hlakk- aði svo til að koma hingað, ég bara skil þetta ekki.“ Margir gáfu fjármuni til þess að ráðstefnan gæti átt sér stað. „Einn lagði 130.000 krónur og annar lagði inn 150.000 krónur, en meirihlutinn var þús- undkallar hérna og þarna.“ „Ég byrjaði að undirbúa komu hans í febrúar og er búinn að leggja mikla vinnu í þessa ráðstefnu,“ segir Sigurfreyr. Að hans sögn var kostnaður yfir ein milljón króna. „Salurinn kostaði 314.000 krónur og borguðum við 150.000 krónur fyr- ir 3 öryggisverði sem eru með 20 ára reynslu, þeir hafa meðal annars gætt Justin Timberla- ke.“ Augljóst var að Sigurfreyr var ósáttur við hvernig þetta endaði þar sem hann var búinn að leggja mikla vinnu í þessa ráðstefnu. Gústaf Adolf Níelsson kom sérstaklega til landsins til að vera með inngangsræðu á ráð- stefnunni. Blaðamaður DV náði tali af hon- um og þótti honum þetta leiðinlegt að þetta hafi farið svona vegna fjarveru Tommy. „Ég gat nú alveg not- að ferðina í eitthvað. Ég ætlaði til dæmis að líta til tannlæknis- ins míns.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.