Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2018, Blaðsíða 53

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2018, Blaðsíða 53
Barnið 18. maí 2018 KYNNINGARBLAÐ Júlíana Magnúsdóttir er hjúkr-unarfræðingur að mennt og brjóstagjafaráðgjafi. Hún kynnt- ist burðarsjölum í gegnum vinkonu sína sem er dúla. „Við erum báðar fylgjandi því að barn njóti nærveru við foreldri sitt. Ég vann á vökudeild og er brjósta- gjafaráðgjafi og þar spilar nándin inn í, að barnið liggi upp við foreldri sitt, en sitji jafnframt í góðri stellingu.“ „Það er mikilvægt að barnið sitji rétt í sjalinu, með mjaðmirnar í M, þá er barnið með lappirnar utan um þann fullorðna, hnén eru bogin og þyngdin er á rassinum. Það er til að barnið hangi ekki á mjöðmunum, ef það gerist þá getur það valdið mjaðmalosi.“ „Sjölin eru þannig að þú klæðir þig í þau, en þarft ekki að vefja þeim marga hringi utan um þig. Þau eru í nokkrum stærðum og er hún valin út frá fata- stærð foreldris eða þeirrar manneskju sem mun bera barnið. Stærð og þyngd barnsins er ekki áhrifavaldur í stærðar- vali.“ Barnið snýr að þeim fullorðna í sjalinu, finnur hjartslátt hans og jafnar sinn eigin um leið og situr kúpt í baki sem er besta staðan fyrir barnið. „Þegar barnið snýr fram þá er sú stelling óhollari fyrir það. Þegar barnið verður eldra þá getur það hins vegar farið að snúa fram í smá tíma.“ „Ef barnið kallar mikið á að vera á handlegg þá er mikill kostur að geta verið með það í sjalinu, þá er maður með barnið hjá sér, en á sama tíma með hendurnar lausar. Og þar sem að sjalið dreifir þyngdinni á bak og báðar axlir þá er þetta ekki jafn erfitt líkam- lega eins og að halda þeim á mjöðm.“ Sjölin duga fyrir börn upp að 16 kg og eru í tveimur gerðum: orginal sem er bómull út í gegn og breeze, sem er einnig úr bómull, en helmingur lykkj- unnar er úr gataðri bómull þannig að efnið andar meira. Hentar það því bet- ur ef foreldri og/eða barn er heitfengt. Sjölin eru í fjórum litum: svörtu, gráu, bláu og fjólubláu. Baby K‘tan vörurnar eru seldar á heimasíðunni babyktan.is, lucina.is, í Móðurást og í Litli gleðigjafinn á Akureyri. Á vefsíðunni Lucina.is og Facebook- síðu með sama nafni eru til sölu ýmsar vörur sem henta vel fyrir barn og for- eldri, til dæmis eru Baby K‘tan skipt- itöskur á leið til landsins sem eru nýstár- legar um leið og þær eru praktískar og fallegar. „Í þeim er fullt af hólfum, eitt stórt kælihólf og hólf fyrir fartölvu, þannig að ein taska dugar fyrir allt sem þarf.“ Skiptitöskurnar verða líka á Baby K‘tan-síðunni og mögulega í verslunum. Einnig eru hreinsiskífur fyrir andlit til sölu, „þær eru stórar og skolast vel úr þeim, ég byrja á að þrífa augun, skola síðan og þríf andlitið. Þetta er algjör snilld,“ segir Júlíana, en hreinsiskífurnar eru mjög hentugar fyrir þá sem vilja hugsa um umhverfið jafnt og húðina. Nánar má skoða vöruúrvalið á heimasíðunni lucina.is BABy K‘tAn BurðArSJöL: Sjalið sem heldur vel utan um barnið þitt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.