Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2018, Blaðsíða 55

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2018, Blaðsíða 55
Barnið 18. maí 2018 KYNNINGARBLAÐ Bókin Gleðilega fæðingu kom nýlega út hjá Forlaginu, en bókin er skrifuð af Þorbjörgu Marinósdóttur, ásamt Hildi Harðar- dóttur fæðingarlækni og Aðalbirni Þorsteinssyni svæfingalækni. Í bókinni er hulunni svipt af leyndardómum fæðingarstofunn- ar og gagnast hún jafnt verðandi foreldrum, sem og öllu áhugafólki um fæðingar. Hér er fjallað um aðdraganda fæðingar, valkosti þegar kemur að fæðingarstöðum og verðandi foreldrum gefin góð ráð til að þeir geti notið til fullnustu þess kraftaverks sem fæðingin er. Fjallað er ítarlega um ólíkar leiðir til að lina fæðingarverki, ekki síst mænurót- ardeyfingu, sem leitast er við að gefa glögga mynd af út frá nýjustu rann- sóknum. „Bókin fjallar í stórum dráttum um það sem gerist inni á fæðingar- deildinni. Flestar aðrar bækur fjalla um meðgönguna og tímann eftir að barnið fæðist, en þessi einblín- ir á fæðingarstofuna og hvað fer þar fram. Hvað er í boði og hvaða áhættuþættir, ef einhverjir, fylgja hinum og þessum deyfingum,“ segir Tobba Marinósdóttir. „Einnig er rætt um aðstöðu á sjúkrahúsum, hvað gerir töng og sogklukka sem dæmi og hvernig líta þau tæki út, kosti og galla mænurótardeyfingar og fleira. Bókin er einnig uppfull af reynslusögum. Hún er skrifuð af mér, Hildi Harðar- dóttur fæðingar- og kvennalækni og Aðalbirni Þorsteinssyni, gjörgæslu- og svæfingalækni, en það eru einmitt svæfingalæknar sem leggja mænu- rótardeyfingu. Bókin er hugsuð sem uppflettirit og gagnast ekki aðeins foreldrum heldur eru líka heilræði fyrir aðstandendur í henni. Ég get sannar- lega sagt að þessi bók er ákaflega fagleg og mikilvægt innlegg inn í fæðingarumræðuna og á sér enga líka hérlendis. Hún er því ákaflega góður undirbúningur og virkar því mjög kvíðastillandi.“ Af hverju ert þú einn meðhöfunda, hvað var það sem fékk þig til að vera með í verkefninu? „Hildur hafði lengi verið með þessa hugmynd og las viðtal við mig eftir að ég eignaðist dóttur mína þar sem ég lýsti því hversu mikið áfall það var fyrir mig hve sár og erfið fæðingin var. Haföndun, jógageisladisk- urinn, ilmkerti og piparmintu- dropar gerðu ekki neitt fyrir mig og ég varð hálfhrædd og fannst ég missa stjórnina,“ segir Tobba. „Af hverju sagði mér enginn að þetta væri svona erfitt? Ég er með mjög háan sársaukaþröskuld en þarna réð ég ekkert við neitt. Ég var sett af stað og við tók langt og sársaukafullt ferli sem ég var ekki nægilega vel undirbúin undir. Þessi bók hefði breytt miklu fyrir mig.“ Þar sem að þú ert móðir sjálf, fannst þér skorta upplýsingar þegar þú fæddir þitt fyrsta barn? „Já, hvað varðar fæðinguna sjálfa. Ég hafði aldrei komið inn á fæðingar- deild og í dag er ekki lengur hægt að fá að skoða þær svo óvissan um hina ýmsu þætti var mikil hjá mér.“ Viðtökurnar við bókinni hafa verið frábærar, bæði hjá fagfólki og foreldrum. „Nú þegar hef ég fengið pósta þar sem mæður lýsa því hvern- ig bókin aðstoðaði þær stórkostlega við undirbúninginn og kvíðastillti fyrir þessi miklu og mikilvægu átök. Allt til þess að fæðingin verði sem gleðileg- ust!“ Gleðilega fæðingu – vellíðan, valkostir og verkjastilling í fæðingu Ein af reynslusögunum sem birtar eru í bókinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.