Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2018, Blaðsíða 2
2 18. maí 2018fréttir
Á þessum degi,
18. maí
1756 – Bretar lýsa yfir stríði gegn
Frökkum og sjö ára stríðið hefst.
1860 – Abraham Lincoln er útnefndur
sem forsetaefni repúblikana
1960 – Aðalheiður Bragadóttir
fæðist
1994 – Ísraelski herinn yfirgefur
Gaza-strönd
2017 – Bandaríski söngvar-
inn Chris Cornell finnst
látinn á hótelherbergi í
Detroit-borg.
sem ættu að leika Sigmund Davíð
Bandaríski kvikmyndaleikstjórinn
Steven Soderbergh hyggst gera kvik-
mynd um Panamaskjölin svoköll-
uðu. Meryl Streep fer með eitt
aðalhlutverkanna í myndinni. Þó
það liggi ekki fyrir hvern hún mun
leika, verður það að teljast
ólíklegt að hún verði í
hlutverki Sigmundar
Davíðs Gunnlaugsson-
ar, þáverandi for-
sætisráðherra Íslands,
sem var í eldlínunni í
Panamaskjölunum. Af
því tilefni tók DV saman
fimm sem ættu að leika
Sigmund Davíð.
Kevin James
Vingjarnlegur og
fyndinn. Gæti komið á
óvart sem Sigmundur
Davíð.
Chris Farley
Hann er reyndar látinn
en það stöðvar ekki
Hollywood í dag. Það
yrði lítið mál að fá
tölvugerðan Farley til
að svara fyrir Wintris.
Amy Schumer
Ilmur Kristjánsdóttir
sló í gegn sem Gísli
Marteinn í skaupinu
um árið. Schumer er að
gera góða hluti þessa
dagana og gæti átt
óskarinn vísan sem
Sigmundur.
James McCartney
Ekki mjög frægur en
ef leikstjórinn Steven
Soderbergh ætlar
að finna leikara sem
er líkari Sigmundi en
Sigmundur þá er ekki
hægt að gera betur
en James, son Paul
McCartney.
Rick Moranis
Robert Downey Jr. í
hlutverki Jóhannes
Kr. Kristjánssonar að
pönkast í Rick Moranis
í hlutverki Sigmundar
yrði án efa eitt eftir-
minnilegasta atriði
kvikmyndasögunnar.
Þ
rír starfsmenn hafa sagt
upp störfum á með-
ferðarheimilinu í Krýsu-
vík. Tóku starfsmennirnir
þá ákvörðun að segja upp störfum
eftir að stjórn Krýsuvíkursamtak-
anna ákvað að bjóða Þorgeiri Óla-
syni starf framkvæmdastjóra. Þor-
geir var forstöðumaður en steig
til hliðar eftir umfjöllun DV fyrr í
vetur þar sem upplýst var um ótal
vankanta á meðferðarstarfinu og
bruðl samtakanna með almanna-
fé. Krýsuvíkursamtökin reka með-
ferð fyrir fólk af báðum kynjum
frá 18 ára aldri. Skjólstæðingarnir
eru jafnan þeir sem hafa átt í hve
mestum vandræðum að fóta sig
í samfélaginu og á öðrum með-
ferðarstofnunum.
Bruðl, óttastjórnun
og kynferðisbrot
Í umfjöllun DV var fjallar um
óttastjórnun, greint frá því að
starfsmaður hefði verið kærð-
ur fyrir alvarlegt kynferðisbrot
og fjallað um óviðeigandi sam-
skipti Þorgeirs við kvenkyns skjól-
stæðinga. Þorgeir er sonur Lovísu
Christiansen sem hefur starf-
að sem framkvæmdastjóri. Í um-
fjöllun DV kom jafnframt fram að
Krýsuvíkursamtökunum var út-
hlutað 112 milljónum á seinustu
fjárlögum. Rúmar níu milljón-
ir fóru í glæsikerru fyrir Þorgeir á
sama tíma og Sigurlína Davíðs-
dóttir, stjórnarformaður Krýsu-
víkursamtakanna, kvartaði sár-
an undan hversu lítið fé samtökin
höfðu á milli handanna. Á meðan
ekki var fjárfest í nagladekk fyrir bíl
sem ferjar ráðgjafa til Krýsuvíkur
voru keypt ný dekk á glæsikerruna
fyrir þrjú hundruð þúsund.
Mæðgin kaupa sér bíla fyrir
fjármuni ríkisins
Ýmislegt athyglisvert kemur í ljós
þegar bílaviðskipti Krýsuvíkur-
samtakanna eru skoðuð. Þannig
fjárfesti Lovísa Christiansen, móð-
ir Þorgeirs, í glænýrri Skoda Oct-
avia-bifreið fyrir sjálfa sig í nóv-
ember 2012. Kaupverðið var 4,7
milljónir króna. Mæðginin hafa
því fengið tvo bíla að verðmæti
13,4 milljóna króna. Lovísa býr
300 metra frá starfsstöð sinni. Eft-
ir umfjöllun DV var bíll Þorgeirs
seldur. Í ársskýrslum kemur síð-
an fram að tæpar sjö milljónir fara
í rekstur á bifreiðum sem verður
að teljast undarlegt þar sem kaup
á eldsneyti er ekki inni í þeirri tölu
né kaup á bifreiðum eða akstur
starfsfólks. Samtökin hafa ekki
viljað skýra þennan útgjaldalið
þegar eftir því var óskað.
Þá varð starfsmaður upp-
vís að ástarsambandi við skjól-
stæðing. Hann var lát-
inn fara tímabundið
en ráðinn aftur. Kærði
þá önnur kona hann
fyrir gróft kynferðis-
brot sem átti sér stað
eftir endurráðninguna. Þá hafa
minnst tveir fyrrverandi starfs-
menn átt í kynferðislegu samneyti
við skjólstæðinga. Krýsuvík fékk
falleinkunn hjá Landlækni 2016
og gerði alvarlegar athugasemd-
ir sem ekki var brugðist við. Það
virðist þó ekki hafa haft neinar af-
leiðingar gagnvart Landlækni eða
velferðarráðuneytinu sem veit-
ir heimilinu fjárframlög. Þvert á
móti, því fjárframlögin hafa aukist
frá því úttektin var gerð. Þá kom
fram að enginn starfsmaður er á
heimilinu eftir klukkan fjögur
á daginn en það hefur verið harð-
lega gagnrýnt.
Starfsmenn segja upp
Þorgeir Ólason, sem á að koma
til starfa á ný, hefur átt í óeðli-
legum samskiptum við kvenkyns
skjólstæðinga, jafnvel ástarsam-
böndum. Sigurlína Davíðsdótt-
ir, stjórnarformaður samtakanna,
hefur staðfest það. Þorgeir var
vegna umfjöllunar DV send-
ur í tveggja mánaða leyfi og bjóst
enginn starfsmaður við að hann
myndi snúa aftur, enda stjórn-
un á staðnum í molum. Eftir að
starfsmönnum var greint frá að
hann væri á leið til starfa á ný
skiluðu þrír starfsmenn inn upp-
sagnarbréfi, er það helmingur
starfsmanna á meðferðarstöðinni.
Eftir eru móðir Þorgeirs og mág-
kona hans en starfsmenn eru að
klára uppsagnarfrest. Einn starfs-
maður sem DV ræddi við og vildi
ekki láta nafns síns getið svaraði
aðspurður um uppsögnina: „Út
af ósætti um hvernig hefur verið
haldið á málum þarna.“
Bætti starfsmaðurinn við að
hann gæti ekki starfað þarna leng-
ur eftir að fréttist að Þorgeir myndi
stýra meðferðarstöðinni.
„Ég ákvað að ég gæti ekki starf-
að þarna lengur eftir að ég fékk
fregnir af því að hann væri að
koma aftur til starfa, þó að ekki
sé búið að staðfesta það formlega
enn þá. Ég get ekki starfað undir
þeim kringumstæðum, samvisku
minnar vegna og faglegs heiðurs
míns. Ég get ekki sætt mig við
hvernig stjórnin tekur á þessum
málum.“ n
Þorgeir snýr aftur og
hópuppsögn á Krýsuvík
n Sendur í leyfi eftir grun um ástarsamband við sjúkling n Starfsfólk ósátt við stjórnina
Kristjón Kormákur Guðjónsson
kristjon@dv.is
Lovísa Christiansen Samþykkti að
kaupa tæplega 10 milljóna króna glæsi-
kerru handa syni sínum, forstöðumannin-
um Þorgeiri Ólasyni. Það eru tæplega 10
prósent af árlegu heildarframlagi ríkisins
til Krýsuvíkur.8,5 milljóna glæsikerra Bíllinn kostaði 8,5 milljónir króna
en síðan var umtalsverðum upphæðum eytt í breytingar.
Þorgeir
Ólason