Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2018, Blaðsíða 62

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2018, Blaðsíða 62
62 sport 18. maí 2018 Mun lítil leikæfing lykilmanna hafa áhrif á HM? n Meiðsli hafa herjað á okkar bestu leikmenn n Verða Gylfi og Aron heilir gegn Argentínu? Þ að er bara tæpur mánuður í það að íslenska landsliðið hefji leik á Heimsmeist- aramótinu í Rússlandi. Þann 16. júní mætir Ísland stórliði Argentínu í fyrsta leiknum sínum á HM. Liðið heldur út viku áður en undirbúningur liðsins fyrir mótið er að fara af stað. Íslenska liðið er byrjað að æfa en aðeins fimm leik- menn eru komnir til æfinga, þeim fjölgar svo í næstu viku og eftir tæpar tvær vikur verða allir leik- menn liðsins komnir saman. Mikil bjartsýni er hjá íslensku þjóðinni fyrir mótinu enda liðið alltaf staðið sig vel síðustu ár. Það er hins vegar óhætt að segja að lykilmenn hafa oftar en ekki ver- ið á betri stað er varðar leikæfingu og meiðsli. Tvær skærustu stjörn- ur liðsins, Gylfi Þór Sigurðsson og Aron Einar Gunnarsson, eru meiddir. Aron fór nýlega í aðgerð og Gylfi hefur ekki spilað síðan í mars. Fyrir Evrópumótið í Frakk- landi var óvissan með lykilmenn ekki eins mikil. Þessum áhyggjum hefur landsliðsþjálfarinn, Heimir Hallgrímsson, flaggað. n Hörður Snævar Jónsson hoddi@433.is Alfreð Finnbogason 6 leikir með félagsliði árið 2018 Framherjinn knái er líklega á besta staðnum af þessum mönnum, náði að að spila fjóra síðustu leiki Augsburg og byrjaði þá alla. Hann hefur hins vegar spilað fáar mínútur á þessu ári og það getur haft áhrif í Rússlandi. Emil Hallfreðsson 8 leikir með félagsliði árið 2018 Emil hefur verið í smá meiðslavandræðum og átti síðan í vand- ræðum með að spila leiki, hann hefur byrjað tvo leiki á þessu ári með Udinese. Mínútur Emils hafa ekki verið margar en miðju- maðurinn hefur á síðasta ári orðið algjör lykilmaður í liði Íslands. Birkir Bjarnason 16 leikir með félagsliði á árinu Birkir hefur spilað mikið á þessu ári en undir það síðasta hefur þessi frábæri leikmaður verið að glíma við meiðsli. Fékk aðeins nokkrar mín- útur í síðasta leik Aston Villa er liðið kom sér í úrslit um laust sæti í ensku, það er vonandi að Birkir fái talsvert af mínútum undir beltið fyrir HM. Birkir Már Sævarsson 3 leikir með Val í Pepsi-deildinni Birkir Már er eini leik- maðurinn sem spilar á Íslandi fyrir mótið, óvíst er hvaða áhrif það mun hafa á leik hans. Birkir hefur spilað alla leiki Vals í sumar en það má ljóst vera að munurinn á ákefð í efstu deild á Íslandi og gegn landsliðum í hæsta gæðaflokki er mikill.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.