Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2018, Blaðsíða 35
Sumarnámskeið 18. maí 2018 KYNNINGARBLAÐ
Við erum að kenna krökkunum að hjóla á öruggan hátt, að læra almennilega á fjallahjólin sín. Þetta snýst ekki um
að hjóla eitthvað út í náttúruna og finna bara
hörðustu staðina og stærstu steinana heldur
að auka öryggi við erfiðar aðstæður,“ segir
Kári Halldórsson, leiðbeinandi frá Hjólreiða-
félagi Reykjavíkur, sem heldur fjallahjólanám-
skeið fyrir börn og unglinga í sumar.
Fyrir utan aukið öryggi þá eru auknir notk-
unarmöguleikar helsta markmið þessarar
kennslu: „Við viljum sýna krökkunum hvar er
hægt að hjóla, sýna þeim hvað Öskjuhlíðin
hefur upp á að bjóða og kenna þeim að hjóla
þar svo þau viti hvað þau eru að gera. Hjól-
in geta nýst á fleiri vegu en bara til að fara í
skólann. Við sýnum þeim staði í nágrenni við
íbúahverfi í vesturhluta borgarinnar þar sem
hægt er að skemmta sér mjög vel á fjallahjól-
inu.“
Þannig stuðla námskeiðin í senn að því að
draga úr slysahættu og auka notkun krakk-
anna á hjólunum þannig að þau verja meiri
tíma í holla útivist.
Kári stýrir þessum námskeiðum í samvinnu
við Eyþór Þorsteinsson en báðir eru meðlimir
í Hjólreiðafélagi Reykjavíkur. Þátttakendum
á námskeiðunum er skipt í fjóra aldurshópa
en krakkarnir í þremur eldri hópunum æfa
að hluta til saman, eftir því sem við á. Eldri
hóparnir þrír eru 7–9 ára, 10–12 ára og 13–15
ára. En auk þess er nú í fyrsta skipti hópur
4–6 ára barna: „Ég hef mikinn áhuga á því að
koma svona ungum krökkum í gang um leið og
þau eru búin að læra á hjól, svo þau læri að
hjóla rétt en hjóli ekki bara einhvern veginn.
Það er mjög gefandi því þau eru svo spennt
og finnst þetta allt svo skemmtilegt,“ segir
Kári. Myndir sem fylgja greininni eru frá fyrstu
æfingunni með yngsta aldurshópnum.
Námskeiðin eru nýhafin en standa fram
í byrjun júlí. Það er því alveg hægt að byrja
núna. Auk þess hefjast námskeiðin á ný í
ágúst og hægt að skrá sig í þau námskeið
núna. Nánari upplýsingar er að finna á
heimasíðu Hjólreiðafélags Reykjavíkur, hfr.is,
undir efnisflokknum Sumarnámskeið. Skráning
á námskeið fer fram á vefsíðunni hfr.felog.is.
Skemmtilegri og
öruggari hjólreiðar
HjólREiðanáMsKEið í ÖsKjuHlíð: