Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2018, Page 35

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2018, Page 35
Sumarnámskeið 18. maí 2018 KYNNINGARBLAÐ Við erum að kenna krökkunum að hjóla á öruggan hátt, að læra almennilega á fjallahjólin sín. Þetta snýst ekki um að hjóla eitthvað út í náttúruna og finna bara hörðustu staðina og stærstu steinana heldur að auka öryggi við erfiðar aðstæður,“ segir Kári Halldórsson, leiðbeinandi frá Hjólreiða- félagi Reykjavíkur, sem heldur fjallahjólanám- skeið fyrir börn og unglinga í sumar. Fyrir utan aukið öryggi þá eru auknir notk- unarmöguleikar helsta markmið þessarar kennslu: „Við viljum sýna krökkunum hvar er hægt að hjóla, sýna þeim hvað Öskjuhlíðin hefur upp á að bjóða og kenna þeim að hjóla þar svo þau viti hvað þau eru að gera. Hjól- in geta nýst á fleiri vegu en bara til að fara í skólann. Við sýnum þeim staði í nágrenni við íbúahverfi í vesturhluta borgarinnar þar sem hægt er að skemmta sér mjög vel á fjallahjól- inu.“ Þannig stuðla námskeiðin í senn að því að draga úr slysahættu og auka notkun krakk- anna á hjólunum þannig að þau verja meiri tíma í holla útivist. Kári stýrir þessum námskeiðum í samvinnu við Eyþór Þorsteinsson en báðir eru meðlimir í Hjólreiðafélagi Reykjavíkur. Þátttakendum á námskeiðunum er skipt í fjóra aldurshópa en krakkarnir í þremur eldri hópunum æfa að hluta til saman, eftir því sem við á. Eldri hóparnir þrír eru 7–9 ára, 10–12 ára og 13–15 ára. En auk þess er nú í fyrsta skipti hópur 4–6 ára barna: „Ég hef mikinn áhuga á því að koma svona ungum krökkum í gang um leið og þau eru búin að læra á hjól, svo þau læri að hjóla rétt en hjóli ekki bara einhvern veginn. Það er mjög gefandi því þau eru svo spennt og finnst þetta allt svo skemmtilegt,“ segir Kári. Myndir sem fylgja greininni eru frá fyrstu æfingunni með yngsta aldurshópnum. Námskeiðin eru nýhafin en standa fram í byrjun júlí. Það er því alveg hægt að byrja núna. Auk þess hefjast námskeiðin á ný í ágúst og hægt að skrá sig í þau námskeið núna. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Hjólreiðafélags Reykjavíkur, hfr.is, undir efnisflokknum Sumarnámskeið. Skráning á námskeið fer fram á vefsíðunni hfr.felog.is. Skemmtilegri og öruggari hjólreiðar HjólREiðanáMsKEið í ÖsKjuHlíð:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.