Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2018, Blaðsíða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2018, Blaðsíða 50
Barnið 18. maí 2018KYNNINGARBLAÐ Ingibjörg hefur langa reynslu sem ljósmóðir, hefur m.a. starfað á fæðingardeild LSH og í mæðravernd og ungbarnavernd við Heilsugæslu Grafarvogs. Hún starfar nú sem sérfræðingur í brjóstagjöf og tví- burarmeðgöngum á Meðgöngu-og sængurlegudeild Landspítala og í áhættumæðravernd. Á brjóstagjafanámskeiðinu fer Ingibjörg í grunnatriði brjóstagjafar, lífeðlisfræðilegar breytingar sem verða á brjóstum kvenna á með- göngunni og eftir fæðingu. Hún sýnir með myndböndum merki barnsins um það hvenær barnið er tilbúið að fara á brjóst eftir fæðinguna. Handtök, álögn, stöður og stell- ingar. Sýnir með dúkkum hvernig á að leggja barnið á brjóst og í framhaldi fá verðandi foreldrar dúkkur í hend- urnar til æfinga. Á námskeiðinu er rætt um mikil- vægi húð við húð-aðferðar og í hverju hún felst og af hverju hún er mikil- væg. Ræðir handmjólkun og um aumar/ sárar geirvörtur. Fyrirburar og tvíburar á brjósti. Stálmi o.fl. Líðan nýfæddra barna, gula o.fl. Maki eða stuðningsaðili er velkominn með á námskeiðið. Námskeiðið er eitt skipti, í u.þ.b. 3 klst., og haldið síðdegis. Sónarskoðun 9 mánaða Yfirleitt fylgir mikil tilhlökkun því að vera barnshafandi og finnst flestum mjög spennandi að fylgjast með kríl- inu vaxa og dafna í móðurkviði. Hjá 9 mánuðum er boðið upp á tvívíddar- og þrívíddarsónar. Mikilvægt er að fólk sem leitar eftir því að koma í sónarskoðun hjá 9 mánuð- um vita að ekki er um fósturrannsóknir að ræða hjá fyrir- tækinu. Ekki er gerð fósturgreining né mælingar, s.s. eins og stærð fósturs. Samkvæmt ábendingu Landlæknis- embættis upplýsum við allar kon- ur um þetta þegar þær óska eftir sónarskoðun. Fósturgreining fer fram á viku 18–20 á fósturgreiningardeild Landspítala og annars staðar þar sem fósturgreining fer fram eins og á sjúkrahúsum á landsbyggðinni. Sónartæki 9 mánðaða er nýlegt og af gerðinni General Electric Voluson 70 PRO. sem er sónartæki í háum gæðaflokki og uppfyllir öll öryggisskil- yrði sem slíkt tæki þarf að uppfylla. Voluson-tækin eru leiðandi í heim- inum á sviði fósturskoðana og gefa einstaklega skýrar myndir af börnum í móðurkviði. Þar sem ekki er um greiningar- sónar að ræða þá höfum við leyft verðandi foreldrum að hafa með sér gesti sem oftast eru þeir sem standa þeim næst, eins og ömmur og afar. Það er gaman að fylgjast með við- brögðum fólks þegar það sér vænt- anlegt barn/barnabarn sitt birtast á skjánum. Það eru miklar tilfinningar sem koma í ljós í skoðunarherberginu, tilhlökkun og jafnvel gleðitár sem renna niður kinnar. Þetta er ánægju- stund fyrir fjölskylduna alla og eru fjölskyldumeðlimir oft með margar spurningar sem við svörum eftir bestu getu. Sumar konur hafa mikla þörf fyrir að tjá sig, þær tala um líðan sína, spyrja okkur spurninga og við sem ljósmæður þekkjum vel þarfir og væntingar kvenna og erum því vel til þess fallnar að svara spurningum þeirra. Við teljum okkur því geta sinnt þessari skoðun vel og gefum hverri konu góðan tíma. Snemmsónar. Ómskoðun sem gerð er fyrir 12. viku meðgöngu kallast snemmsónar / snemmómskoðun. Tilgangur skoðunarinnar er meðal annars að athuga hvort fóstrið sé á réttum stað (inni í leginu), fjöldi fóstra er talinn, hjartsláttur fósturs metinn og meðgöngulengd áætluð*. Hjá 9 mánuðum er boðið upp á þessa skoðun frá viku 7–12. Skoðað er í gegnum kviðvegginn (rétt fyrir ofan lífbein). Ómskoðunin er framkvæmd af ljósmóður, með sérhæfingu í óm- skoðunum á kvenlíffærum og á með- göngu (ultrasound in gynaecology and obstetrics). Tvívíddarsónar býður upp á hefð- bundnar svart/hvítar tvívíddarmyndir líkt og í 12 og 20 vikna sónarskoðun. Nú með nýju sónartæki er hægt að bjóða upp á hreyfimyndir í tvívídd. Í tvívíddarsónar er hægt að: n Sjá stellingu barnsins og hreyf- ingar n Sjá og heyra hjartslátt n Sjá kyn ef þess er óskað 3D /4D Þrívíddin gefur dýpt í myndirnar og fjórvíddin þýðir að hreyf- ingunum er bætt við, það er að segja, hreyfingar barnsins sjást í þrívídd. Foreldrar fá myndir af barninu á pappír og einnig á USB-lykli. Almennt er talað um að besti tíminn til að skoða í 3D sé frá viku 26 til viku 32. Þetta er þó einstaklingsbundið. Við skoðum í 3vídd frá viku 22 til viku 36 og getum fengið mjög skýrar myndir alla meðgönguna ef allar aðstæður eru góðar og barnið í heppilegri stellingu. Það eru nokkur atriði sem hafa ber í huga þegar er sónarskoðað. Lega barnsins hefur áhrif á hvernig myndir er hægt að fá, sem og myndgæðin. Barnið getur snúið andlitinu innávið eða haft hendurnar og/eða fæt- urna fyrir andlitinu. Ef barnið liggur þétt upp við legvegg móðurinnar eða fylgju getur verið vandkvæðum bundið að ná góðum myndum með þessari tækni. Einnig getur fitulag á kviðvegg móður og staðsetning fylgju haft áhrif á gæði og skýrleika mynda. Ef börnin hreyfa sig föngum við þau augnablik. Sú tækni hefur verið kölluð fjórvídd eða rauntímamyndir. Sumir hafa spurt hvort nauðsyn- legt sé að vita kyn barnsins ef farið er í 3D en svo er ekki, ef foreldrar vita ekki og vilja ekki vita kyn barnsins þá skoðum við það svæði ekki. Foreldrar fá u.þ.b. 4 myndir á sv/hv pappír og svo allar myndir og hreyfi- myndaskeið á USB-lykli. Við reynum að miða við að foreldrar fái 20–40 myndir en það fer alltaf eftir litla kríl- inu hvað fást margar myndir og hvort við náum hreyfimyndum. Að lokum vilja þær stöllur í 9 mánuðum þakka öllum þeim sem til þeirra hafa leitað og bjóða nýja viðskiptavini velkomna. Þær benda á heimasíðu fyrirtækisins www.9manudir.is en þar eru allar nánari upplýsingar að finna og auð- veldlega hægt að ná í starfsfólkið þar með því að senda póst á info@9manudir.is Hægt er að kaupa gjafabréf í allar meðferðir sem 9 mánuðir hafa upp á að bjóða. ljósmæður/fæðingarfræðsla
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.