Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2018, Blaðsíða 22
22 umræða
Sandkorn
18. maí 2018
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru
hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
Aðalnúmer: 512 7000
Auglýsingar: 512 7050
Ritstjórn: 512 7010
Útgáfufélag: Frjáls fjölmiðlun ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson
Framkvæmdastjóri: Karl Garðarsson Aðalritstjóri og ábyrgðarmaður: Kristjón Kormákur Guðjónsson
Aðstoðarritstjóri: Einar Þór Sigurðsson Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur
Suðurlandsbraut 14
2. hæð
108 Reykjavík
fréttaskot
512 7070
abending@dv.is
Leiðari
Ari Brynjólfsson
ari@dv.is
Hunskastu á kjörstað
K
osningaþátttaka er á stöð-
ugri niðurleið og það er
verulegt áhyggjuefni. Dvín-
andi áhugi fólks á stjórn-
málum er alþjóðlegt fyrirbæri
og Ísland stendur ekki illa í sam-
anburði við önnur OECD-ríki,
að minnsta kosti í þingkosning-
um þar sem kosningaþátttaka jó-
kst í fyrra. Það er önnur saga með
sveitarstjórnarkosningar þar sem
þátttakan hefur alltaf verið í sögu-
legu lágmarki síðan 2002. Í síðustu
sveitarstjórnarkosningum, 2014,
var kosningaþátttakan í enn eitt
skiptið í sögulegu lágmarki, eða
66,5% í þeim kjördæmum þar sem
var ekki sjálfkjörið.
Það er næstyngsti aldurshópur-
inn sem dregur niður meðaltalið.
Árið 2014 mættu aðeins 45% ung-
menna á aldrinum 20 til 24 ára á
kjörstað. Það þýðir einfaldlega að
55% þeirra sem eru fædd á árun-
um 1990 til 1994 hafði ekkert að
segja hver er borgarstjóri, bæjar-
stjóri eða sveitarstjóri. Meira en
helmingur þessa aldurshóps hafði
engin áhrif á hvað það mörg leik-
og grunnskólapláss eru í boði í
sínu sveitarfélagi. Kosningaþátt-
takan var mest í aldurshópnum
70 til 74 ára, þar hafði meira en
80% áhrif á dagforeldrakerfið og
rekstur almenningssamgangna.
Sveitarstjórnarmál eru ekki það
skemmtilegasta í heimi. Þegar upp
er staðið eru þetta peningarnir
þínir og það er þitt að velja hvaða
mannverur eiga að vera þinn full-
trúi og ákveða hvernig stjórnkerfið
í þínu nærumhverfi er rekið.
Það má ekki gerast að það verði
enn eitt sögulegt lágmark í kosn-
ingaþátttöku og þá sérstaklega
meðal ungs fólks. Það er engin af-
sökun í þetta skiptið, að minnsta
kosti ekki í Reykjavík þar sem sext-
án framboð verða á kjörseðlinum.
Þegar þú, kæri kjósandi, ert bú-
inn að afskrifa nokkra af þessum
flokkum sem rugl sem höfðar ekki
til þín þá ertu samt með óteljandi
möguleika. Það er vissulega best
að skoða allt sem er í boði og taka
upplýsta ákvörðun. Það er hins
vegar ekki nauðsynlegt, enda hafa
margir engan tíma í kosningapróf
og er alveg slétt sama um þjónustu
sem kemur þeim ekkert við.
Það er gott að verið sé að
bregðast við dræmri kosninga-
þátttöku ungs fólks og erlendra
ríkisborgara, þar sem kosninga-
þátttakan var sláandi léleg í síð-
ustu sveitarstjórnarkosningum,
með því að senda SMS og eitthvað
þannig. En á endanum er það þitt
að tryggja það að þátttakan sé góð
með því að stilla vekjaraklukk-
una á 26. maí og mæta á kjörstað.
Þú hefur viku til að finna þér full-
trúann þinn, það er ekki víst að
það takist. Þá er allt í lagi að taka
bara kjörseðilinn og henda hon-
um beint í kassann. Hunskastu
bara á kjörstað. n
S
öngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva er senni-
lega einhvers konar
heimsmet í lágkúru. Það
er í raun með ólíkindum að heil
heimsálfa taki sig til einu sinni á
ári og semji ógrynni af miðlung-
slélegum popplögum með það
eitt að markmiði að halda smekk-
lausasta partí Evrópu. Sjálfur ólst
ég upp við þann skelfilega ótta
að við Íslendingar gætum raun-
verulega sigrað þennan ófögnuð.
Það hefði bæði þýtt fjárhagslegt
sem og menningar-
legt gjaldþrot ís-
lensku þjóðarinn-
ar. Ég hef sjaldan
séð foreldra mína
jafn mikið á nálum
og þegar Stjórnin náði næstum
að stela sigrinum af hinu skelfi-
lega spænska framlagi, „Bandido“
sem hefur án efa verið notað við
pyntingar í fangabúðum víða um
heim.
Að þessu sögðu, þá legg ég til að
við refsum Ísrael fyrir sína vitfirrtu
ofbeldisstefnu gagnvart Palestínu
með því að senda
þessa sturluðu
keppni til þeirra. Hinir allra
róttækustu geta kallað það menn-
ingarlegt hryðjuverk. Svo það
fari ekki á milli mála að okkur sé
alvara með andóf okkar, þá legg ég
til að RÚV fái sama teymi og síðast
til þess að semja íslenska framlag-
ið. Slíkt væri líklega ígildi stríðs-
yfirlýsingar.
Í
dag hafa hafa fleiri en sex-
tíu palestínskir mótmælend-
ur á öllum aldri verið skotnir
til bana af Ísraelsher og þús-
undir liggja særðir. Myrt og lim-
lest fyrir að minna á endalaust
landrán, pyntingar, morð, ras-
isma, niðurlægingu og kúgun
Zionista á palestínskum almenn-
ing. Bandaríkjastjórn hefur alla
tíð stutt blóðbaðið og evrópsk
stjórnvöld eru eins og Tourette-
kippur í litla fingri kúgarans svo
hann kyrkir áfram. Sem sagt,
lítið breyst frá tímum Apartheid-
stjórnarinnar í Suð-
ur-Afríku. Þar skipti
þrýstingur almenn-
ings öllu máli, og ekki
síst tónlistarmanna.
Allir flottustu tónlist-
armenn þess tíma neituðu að
koma fram í S-Afríku þar til að-
skilnaðarstefnan var afnumin,
það sama er upp á teningnum í
dag gagnvart Ísrael. Listamenn,
allt frá U2 til Snoop Dogg og
meðlimi Public Enemy til Pink
Floyd, mynda þennan fjölmenna
hóp. Það er góður hópur sem
við ættum að vera hluti af. RÚV
er sem betur fer í al-
menningseign og hef-
ur skyldur í samræmi
við það, þar með talið siðferðis-
skyldur. Meðan Zioniska flipp-
hænsnið „Netta“ dansar júródi-
skó í palestínskum blóðpollum
Jerúsalem á næsta ári, þá förum
við frekar með hreina samvisku
á Evróvisjon-Pallaball á Spot og
teljum 90 milljónirnar sem við
spörum í leiðinni.
Erpur Eyvindarson rappari Valur Grettisson blaðamaður
Með og á Móti Á ÍSland að Sniðganga EuroviSion Á næSta Ári?
með á móti
Á Ísland að taka þátt í Eurovision 2019 í Ísrael?Spurning vikunnar
„Nei. Ég er ekki sammála Ísraelsríki í sínum málum.“
Mikael Baldvinsson
„Já, þetta er stuð og heldur landanum saman.“
Lofthildur Bergþórsdóttir
„Nei, eigum við ekki að hvíla þetta í nokkur ár?“
Hreiðar Sigurbjörnsson
„Nei, það finnst mér ekki út af þessu pólitíska ástandi.“
gróa Finnsdóttir
Enginn kannast við Svanhildi
Hörpumálið svokallaða virðist
blásið yfir, það er ekki leng-
ur í almannaumræðunni að
Svanhildur Konráðsdóttir sitji
áfram sem forstjóri Hörpu og
hvorki hún né stjórnin þurfi að
bera neina ábyrgð á því að laun
þjónustufulltrúa voru lækkuð
en ekki stjórnenda. Landspít-
alanum var alveg sama og hélt
sinn aðalfund í Hörpu eins
og ekkert hefði í skorist. Sem
betur fer fyrir meirihlutann í
borginni, sem á sínum tíma
hélt tvær mörg hundruð þús-
und króna veislur fyrir Svan-
hildi þegar hún hætti sem
sviðsstjóri hjá borginni. Enginn
kannast heldur við að hafa
skipað stjórn Hörpu eða stig-
ið fram og heitið því að skipta
út stjórnarformanninum sem
kenndi fjölmiðlum um að
ljóstra upp um málið.
Ætlar Eyþór að fela
eitthvað?
Af öllum oddvitum í borginni
er Eyþór Arnalds, borgar-
stjóraefni Sjálfstæðisflokksins,
minnst hrifinn af því að opna
stjórnsýsluna og bókhald borg-
arinnar. Samkvæmt kosninga-
prófi RÚV, sem allir oddvitar í
borginni og víðar tóku þátt í,
er Eyþór aðeins 18% fylgjandi
því að opna stjórnsýsluna. All-
ir aðrir oddvitar, nema Vigdís
Hauksdóttir í Miðflokknum og
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir í Við-
reisn, vilja 100% opna stjórn-
sýsluna. Er Vigdís 80% fylgjandi
því og Þórdís Lóa 92%. Hildur
Björnsdóttir, sem skipar annað
sætið á lista Sjálfstæðisflokks-
ins, er einnig 100% fylgjandi
því að opna stjórnsýsluna eins
mikið og hægt er. Þetta vekur
óneitanlega spurninguna, mis-
skildi Eyþór spurninguna eða
ætlar hann sem borgarstjóri að
fela eitthvað?