Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2018, Síða 55
Barnið 18. maí 2018 KYNNINGARBLAÐ
Bókin Gleðilega fæðingu kom nýlega út hjá Forlaginu, en bókin er skrifuð af Þorbjörgu
Marinósdóttur, ásamt Hildi Harðar-
dóttur fæðingarlækni og Aðalbirni
Þorsteinssyni svæfingalækni.
Í bókinni er hulunni svipt af
leyndardómum fæðingarstofunn-
ar og gagnast hún jafnt verðandi
foreldrum, sem og öllu áhugafólki
um fæðingar. Hér er fjallað um
aðdraganda fæðingar, valkosti
þegar kemur að fæðingarstöðum og
verðandi foreldrum gefin góð ráð til
að þeir geti notið til fullnustu þess
kraftaverks sem fæðingin er. Fjallað
er ítarlega um ólíkar leiðir til að lina
fæðingarverki, ekki síst mænurót-
ardeyfingu, sem leitast er við að gefa
glögga mynd af út frá nýjustu rann-
sóknum.
„Bókin fjallar í stórum dráttum
um það sem gerist inni á fæðingar-
deildinni. Flestar aðrar bækur fjalla
um meðgönguna og tímann eftir
að barnið fæðist, en þessi einblín-
ir á fæðingarstofuna og hvað fer
þar fram. Hvað er í boði og hvaða
áhættuþættir, ef einhverjir, fylgja
hinum og þessum deyfingum,“ segir
Tobba Marinósdóttir. „Einnig er rætt
um aðstöðu á sjúkrahúsum, hvað
gerir töng og sogklukka sem dæmi og
hvernig líta þau tæki út, kosti og galla
mænurótardeyfingar og fleira. Bókin
er einnig uppfull af reynslusögum.
Hún er skrifuð af mér, Hildi Harðar-
dóttur fæðingar- og kvennalækni og
Aðalbirni Þorsteinssyni, gjörgæslu-
og svæfingalækni, en það eru einmitt
svæfingalæknar sem leggja mænu-
rótardeyfingu. Bókin er hugsuð sem
uppflettirit og gagnast ekki aðeins
foreldrum heldur eru líka heilræði fyrir
aðstandendur í henni. Ég get sannar-
lega sagt að þessi bók er ákaflega
fagleg og mikilvægt innlegg inn í
fæðingarumræðuna og á sér enga
líka hérlendis. Hún er því ákaflega
góður undirbúningur og virkar því
mjög kvíðastillandi.“
Af hverju ert þú
einn meðhöfunda,
hvað var það sem
fékk þig til að vera
með í verkefninu?
„Hildur hafði
lengi verið með
þessa hugmynd
og las viðtal við
mig eftir að ég
eignaðist dóttur
mína þar sem ég
lýsti því hversu
mikið áfall það var
fyrir mig hve sár
og erfið fæðingin
var. Haföndun,
jógageisladisk-
urinn, ilmkerti
og piparmintu-
dropar gerðu ekki
neitt fyrir mig og ég varð hálfhrædd
og fannst ég missa stjórnina,“ segir
Tobba. „Af hverju sagði mér enginn
að þetta væri svona erfitt? Ég er
með mjög háan sársaukaþröskuld
en þarna réð ég ekkert við neitt. Ég
var sett af stað og við tók langt og
sársaukafullt ferli sem ég var ekki
nægilega vel undirbúin undir. Þessi
bók hefði breytt miklu fyrir mig.“
Þar sem að þú ert móðir sjálf,
fannst þér skorta upplýsingar þegar
þú fæddir þitt fyrsta barn?
„Já, hvað varðar fæðinguna sjálfa.
Ég hafði aldrei komið inn á fæðingar-
deild og í dag er ekki lengur hægt að
fá að skoða þær svo óvissan um hina
ýmsu þætti var mikil hjá mér.“
Viðtökurnar við bókinni hafa
verið frábærar, bæði hjá fagfólki og
foreldrum. „Nú þegar hef ég fengið
pósta þar sem mæður lýsa því hvern-
ig bókin aðstoðaði þær stórkostlega
við undirbúninginn og kvíðastillti fyrir
þessi miklu og mikilvægu átök. Allt til
þess að fæðingin verði sem gleðileg-
ust!“
Gleðilega fæðingu
– vellíðan, valkostir og
verkjastilling í fæðingu
Ein af reynslusögunum sem birtar eru í bókinni.