Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2018, Side 53
Barnið 18. maí 2018 KYNNINGARBLAÐ
Júlíana Magnúsdóttir er hjúkr-unarfræðingur að mennt og brjóstagjafaráðgjafi. Hún kynnt-
ist burðarsjölum í gegnum vinkonu sína
sem er dúla. „Við erum báðar fylgjandi
því að barn njóti nærveru við foreldri
sitt. Ég vann á vökudeild og er brjósta-
gjafaráðgjafi og þar spilar nándin inn
í, að barnið liggi upp við foreldri sitt, en
sitji jafnframt í góðri stellingu.“
„Það er mikilvægt að barnið sitji rétt
í sjalinu, með mjaðmirnar í M, þá er
barnið með lappirnar utan um þann
fullorðna, hnén eru bogin og þyngdin er
á rassinum. Það er til að barnið hangi
ekki á mjöðmunum, ef það gerist þá
getur það valdið mjaðmalosi.“
„Sjölin eru þannig að þú klæðir þig í
þau, en þarft ekki að vefja þeim marga
hringi utan um þig. Þau eru í nokkrum
stærðum og er hún valin út frá fata-
stærð foreldris eða þeirrar manneskju
sem mun bera barnið. Stærð og þyngd
barnsins er ekki áhrifavaldur í stærðar-
vali.“
Barnið snýr að þeim fullorðna í
sjalinu, finnur hjartslátt hans og jafnar
sinn eigin um leið og situr kúpt í baki
sem er besta staðan fyrir barnið.
„Þegar barnið snýr fram þá er sú
stelling óhollari fyrir það. Þegar barnið
verður eldra þá getur það hins vegar
farið að snúa fram í smá tíma.“
„Ef barnið kallar mikið á að vera á
handlegg þá er mikill kostur að geta
verið með það í sjalinu, þá er maður
með barnið hjá sér, en á sama tíma
með hendurnar lausar. Og þar sem að
sjalið dreifir þyngdinni á bak og báðar
axlir þá er þetta ekki jafn erfitt líkam-
lega eins og að halda þeim á mjöðm.“
Sjölin duga fyrir börn upp að 16 kg
og eru í tveimur gerðum: orginal sem
er bómull út í gegn og breeze, sem er
einnig úr bómull, en helmingur lykkj-
unnar er úr gataðri bómull þannig að
efnið andar meira. Hentar það því bet-
ur ef foreldri og/eða barn er heitfengt.
Sjölin eru í fjórum litum: svörtu, gráu,
bláu og fjólubláu.
Baby K‘tan vörurnar eru seldar á
heimasíðunni babyktan.is, lucina.is, í
Móðurást og í Litli gleðigjafinn á Akureyri.
Á vefsíðunni Lucina.is og Facebook-
síðu með sama nafni eru til sölu ýmsar
vörur sem henta vel fyrir barn og for-
eldri, til dæmis eru Baby K‘tan skipt-
itöskur á leið til landsins sem eru nýstár-
legar um leið og þær eru praktískar
og fallegar. „Í þeim er fullt af hólfum,
eitt stórt kælihólf og hólf fyrir fartölvu,
þannig að ein taska dugar fyrir allt sem
þarf.“ Skiptitöskurnar verða líka á Baby
K‘tan-síðunni og mögulega í verslunum.
Einnig eru hreinsiskífur fyrir andlit til
sölu, „þær eru stórar og skolast vel úr
þeim, ég byrja á að þrífa augun, skola
síðan og þríf andlitið. Þetta er algjör
snilld,“ segir Júlíana, en hreinsiskífurnar
eru mjög hentugar fyrir þá sem vilja
hugsa um umhverfið jafnt og húðina.
Nánar má skoða vöruúrvalið á
heimasíðunni lucina.is
BABy K‘tAn BurðArSJöL:
Sjalið sem heldur vel
utan um barnið þitt