Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2018, Page 54
Barnið 18. maí 2018KYNNINGARBLAÐ
Chicco.is: Fallegar gæðavörur
fyrir börn og foreldra
Snuð og bílStólar og allt þar á milli
Fyrirtækið Chicco var stofnað árið 1958 af ítal-
anum Cavaliere
del lavoro Pietro
Catelli, sem langaði
að fagna eins árs
afmæli sonar síns,
Enrico. Sonurinn bar
gælunafnið Chicco og
var fyrirtækið nefnt eftir
honum.
Chicco framleiðir allar vörur í sam-
starfi við fagaðila og sérfræðinga,
hvern á sínu sviði: sem dæmi barna-
lækna og iðjuþjálfa. Chicco er með
eigin rannsóknarstofu og leggur mikla
áherslu á öryggi, að vörurnar séu
eiturfríar og öruggar fyrir börnin.
„Chicco-vörurnar hafa verið seldar
í mörg ár hér á landi og eru til vörur
frá snuðum upp í bílstóla og allt þar á
milli,“ segir Elísabet ingvarsdóttir hjá
gullskógum ehf., sem selur Chicco-
vörurnar.
„Chicco framleiðir sérstakar
flugnafælur sem eru ætlaðar öllum
aldri, en líka ungbörnum og barns-
hafandi konum. þær eru til í spreyi,
rolloni og geli og einnig er til afterbite
sem dugar á öll bit. Chicco framleiðir
einnig tvær gerðir af flugnafæl-
um með batteríum, önnur er með
klemmu og hægt að festa hana á
barnavagninn. Hana má þó nota fyrir
aðra en börn. Ég set hana á buxna-
strenginn þegar ég fer í göngu, einnig
er hægt að festa hann á bakpoka/
golfpoka og hún virkar í 3 metra
radíus í kringum viðkomandi. Hin
flugnafælan er stungin í rafmagn
og hún virkar í 25 fm herbergi. þær
virka á mýið hér heima líka. það er
ekkert annað fyrirtæki sem framleið-
ir barnavörur sem framleiðir svona
vörur.“
„next to me-vöggurnar eru með
dýnu sem er öndunarefni í og hana er
hægt að hafa alveg upp við rúm for-
eldra. Hægt er að opna aðra hliðina,
þannig að barnið liggur nálægt for-
eldrum
sínum, en
er samt í
eigin rúmi.
11 hækkanir
eru á rúm-
inu, þannig
að það léttir
undir með
foreldrum þegar barnið er lagt niður
eða tekið upp. Einnig er hægt að
hækka upp höfðalagið. Vaggan er á
hjólum, hægt að setja hana á ruggu
og einnig er hægt að pakka henni
þannig að lítið fari fyrir henni og taka
hana með ef barnið gistir annars
staðar. taska fylgir með vöggunni.“
„bobby-meðgöngupúðinn og
bobby-gjafapúðinn njóta einnig sér-
stöðu. gjafapúðinn hefur fengið verð-
laun í bandaríkjunum á hverju ári frá
árinu 2008. gjafapúðinn liggur alveg
að móðurinni eða þeim fullorðna,
hvort sem barnið er á brjósti eða á
pela og barnið liggur í réttri stöðu.
axlir þess fullorðna eru í réttri stöðu
og afslappaðar. Púðinn er fylltur með
trefjum og rafmagnar ekki.“
„meðgöngupúðinn, sem er mjög
vinsæll, er þrískiptur og geta þung-
aðar konur notað hann í heild, eða
hvern hluta fyrir sig. Hægt er að hafa
einn hluta undir kúlunni, annan undir
höfðinu. Púðinn hentar einnig fyrir
aðra en þungaðar konur.“
liteWay-kerran er ein gerð af
kerrum sem Chicco framleiðir og er
margverðlaunuð. Hún er aðeins 7,5
kg, úr áli, létt og meðfærileg. Hún
fer í svefnstellingu og er með bólstr-
uðu fimm punkta belti.
Kerrupoki og regnplast
fylgir. Kerran leggst
saman með einu hand-
taki eins og regnhlíf.
það er hægt að halda
á barninu og setja hana
saman eða taka hana
upp um leið.“
„twist-stóllinn er fyrir börn frá 12
mánaða. Stóllinn hefur verið mjög
vinsæll, hann er léttur og mín fimm
ára notar sinn stól ennþá. Hægt er
að nota hann sem legubekk og hafa
fæturna uppi, eða halla bakinu aftur
og þá er stóllinn orðinn sófi. það er
gaman fyrir börnin að hafa sitt eigið,
að eiga sinn eigin stól og þurfa ekki
að príla upp í stóla eða sófa þeirra
fullorðnu.“
„Chicco baby walker, gamli góði
formakassinn, í uppfærðu útliti. Hann
er með batteríum og alla vega hljóð
heyrast þegar kúlurnar eru settar
í og spilar lag á meðan barnið ýtir,
sem eflir öll skilningarvit hjá barninu.
Chicco hugsar líka um fullorðna
fólkið og því er möguleiki á að
slökkva á hljóðunum. Einstak-
lega fallegt leikfang sem hjálpar
barninu að taka fyrstu skrefin í
öryggi.
„Pocket relax-ömmu-
stóllinn er með allar
stillingar sem ömmustóll
þarf að hafa, honum má
rugga eða festa hann.
En síðan má pakka hon-
um saman á fyrirferðarlítinn hátt
og setja í samlitan poka sem fylgir
með. Einstaklega þægilegur stóll sem
hentar mjög vel fyrir ferðalög og líka
fyrir mig sem ömmu sem vil geta sett
hann inn í skáp þegar ömmubörnin
eru ekki í heimsókn. þetta er ný og
önnur hugsun í ömmustólunum klass-
ísku.“
„Disney-óróinn er mjög fallegur og
hægt að varpa bambamynd upp á
vegg eða loft. 15 mínútur af klassískri
tónlist, dýrin snúast í hring eða eru
kyrr. það sem ég vissi ekki um óróa
er að þeir eru notaðir til að núllstilla
höfuð barnsins. Eitt af mínum ömmu-
börnum fæddist í noregi og var tekið
með klukku. þegar börn eru tekin með
klukku í noregi fara þau sjálfkrafa
til sjúkraþjálfara. álagið er mikið á
höfuðið og barnið leitast
við að snúa sér og hlífa
höfðinu. órói er notaður
til að núllstilla höfuðið.“
Heimasíðan chicco.is er
opin allan sólarhringinn
og svo er hægt að fylgj-
ast með okkur á Face-
book: Chicco á Íslandi og
Instragam: chiccoisland.
Við erum á Smiðjuvegi 4C
og er opið virka daga frá kl.
8–16.