Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2018, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2018, Blaðsíða 33
 25. maí 2018 KYNNINGARBLAÐ Veitingastaðir Nesbær: Notalegt kaffihús í náttúrufegurð Norðfjarðar Nesbær kaffihús í Neskaupstað var stofnað 1. maí 1998 og átti því tvítugsafmæli fyrr í mánuðinum. eigandi frá upphafi er sigríður Þ. Vilhjálmsdóttir. Nesbær er í stóru og fallegu húsi í hjarta miðbæjarins og áherslan er lögð á notalegt og heimilislegt and- rúmsloft, þar sem léttir réttir og kökur eru á matseðlinum. „Þetta er svolítið eins og þú sért að koma í heimsókn til mín,“ segir sigríður. „Við erum með dæmigerðan kaffi- húsamatseðil: létta rétti, súpu dagsins, crepes, fisk, samloku hússins og pizzur. Léttir rétti sem henta fyrir alla og eru á viðráðanlegu verði. Við reynum að verða við öllum óskum viðskiptavina okkar. Heimabakaðar kökur eru einnig á boðstólum og alltaf er boðið upp á köku mánaðarins, sem dæmi er kaka maímánaðar súkkulaðikaka.“ Frítt net er í boði fyrir viðskiptavini. Nesbær býður ekki bara upp á mat því þar er einnig hægt að kaupa blóm, gjafavöru, lopa og íslenskar lopapeysur sem eru prjónaðar á staðnum. „Í Neskaupstað og á Norðfirði er frábært náttúrusvæði, fallegar gönguleiðir og gaman að koma hing- að og njóta náttúrunnar. Framundan eru tvær hátíðir þar sem íbúafjöldinn margfaldast: eistnaflug er 11. – 14. júlí og Neistaflug um verslunarmanna- helgina.“ Það er því tilvalið að kíkja við í Nesbæ á leið um Austurland, njóta heimilislegs andrúmslofts og ljúfra veitinga. Nesbær er á egilsbraut 5, Neskaupstað, síminn er 477-1115, net- fangið er nesbaer@simnet.is. Nesbær er á Facebook. skyrgerðiN HVerAgerði: Kolagrillaður eðalmatur í sögulegu og hlýlegu umhverfi Vorið 2017 opnaði elfa Dögg Þórðardóttir skyrgerðina í Hveragerði, en hún á einnig Frost og funa hótel og Veitingahúsið Varmá. skyrgerðin er að breiðumörk 25 og var húsið reist sem þinghús héraðsins sem og skyrgerð og á sér langa og mikla sögu sem tengist bænum og bæjarbúum sterkum böndum. „Tilefnið var að húsið var til sölu, en það er eitt af þremur fyrstu hús- unum í Hveragerði og fyrsta verk- smiðjuskyrgerðin á landinu, stofnuð árið 1930,“ segir elfa aðspurð um upphaf skyrgerðarinnar, „þá ákvað ég að kaupa og endurvekja gömlu skyrgerðina og vera með gamaldags skyr og endurvekja gamlar hefðir og matargerð.“ Aðalsmerkið kolagrillaðar kótilettur Hjá skyrgerðinni er allur maturinn kolagrillaður, en matseðillinn er fjöl- breyttur og ættu allir að finna mat við sitt hæfi. kolagrillaðar kótilettur eru aðalsmerkið, en einnig eru fiskur, veg- ansteik, kjöt, humar og hamborgarar í boði. „kótiletturnar eru langskorn- ar fyrir okkur og með þeim fylgir bökuð kartafla, hvítlaukssmjör, bernaisessósa og salat. „Við einblínum á að hafa hagstætt verð og meirihluti viðskiptavina okkar eru Íslendingar, bæði heimamenn og fólk sem er á ferðinni,“ segir elfa. einnig er smurbrauð og kökur á matseðlinum, líkt og boðið var upp á í eden áður fyrr. Hrært gamaldags skyr vinsælt „skyrið er hægt að kaupa í smjörpappír eins og gert var í gamla daga,“ segir elfa. „Við notum það einnig í sósur og skyrtertur. Hrært gamaldags skyr er vinsælt, sérstaklega hjá útlendingunum og bláberjaskyrtertan er vinsælust.“ Hjá skyrgerðinni eru sæti fyrir 150 manns, 50 á veitingastaðnum sjálfum og veitingasalurinn tekur 110 manns í sæti. salinn má leigja fyrir hópa, hvort sem er ferðamenn, starfs- mannahópa, veislur eða ættarmót. Skyrsýning einstaklega vinsæl Vinsælt er hjá ferðamönnum að koma á skyrsýningu. „Við létum gera sjö mínútna kvikmynd þar sem farið er yfir sögu skyrgerðar á Íslandi og sögu hússins og hvernig það var byggt. Myndin er á íslensku og ensku og verið að texta hana á fleiri tungu- málum vegna eftirspurnar. Fólk fær að smakka gamaldags skyr, hrært skyr og skyr mojito. Það fær að fara inn í skyrgerðina, sal sem hefur verið innréttaður eins og gam- alt þorp, með gömlum skyrgerðar- tækjum frá byggðasafni Árnesinga.“ Á efri hæð hússins er gisting í boði, en þar eru 12 herbergi. skyrgerðin er að breiðamörk 25, Hveragerði, síminn er 481-1010, net- fangið er info@skyrgerdin.is Heimasíða: skyrgerdin.is og Facebooksíða: skyrgerdin. Opnunartími er frá klukkan kl. 11.30 – 22 sunnudaga til fimmtudaga og frá kl. 11.30 – 23 föstudaga og laugardaga.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.