Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2018, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2018, Blaðsíða 35
 25. maí 2018 KYNNINGARBLAÐ Veitingastaðurinn Krydd var opnaður í lok apríl, í hjarta Hafnarfjarðar, nánar tiltekið í menningarmiðstöðinni Hafnarborg. Þar með rættist gamall draumur sex innfæddra Hafnfirðinga, þriggja para, sem eru þau Hilmar Þór Harðarson og Hulda Heiðrún Óladóttir, Signý Eiríksdóttir og Jón Tryggvason, Geir- þrúður Guttormsdóttir og Hafsteinn Hafsteinsson. „Þetta er staðurinn sem okkur dreymdi alltaf um og þá á ég við að okkur langaði að það væri til svona veitingastaður í Hafnarfirði sem við gætum sótt,“ segir Hilmar Þór Harðarson sem gegnir stöðu fram- kvæmdastjóra og yfirkokks á Kryddi. En hvernig staður er þá Krydd? Karakterinn lýsir sér meðal annars í rýminu og innréttingunum sem taka mið af heimi hafnarinnar og sjósókn- ar. „Í upphafi vorum við fyrst og fremst spennt fyrir plássinu, lofthæðin er mikil og það eru stórir flottir gluggar. Við sáum þarna líka möguleika á að nýta bryggjutimbur sem er ráðandi þema á barnum og ganginum,“ segir Hilmar en hönnuðir staðarins eru þau Geirþrúður Guttormsdóttir, Jón Tryggvason og Signý Eiríksdóttir. Í matargerðinni er lögð áhersla á léttan og skemmtilegan stíl og breið- an matseðil þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. „Við erum með allt frá litlum brauðréttum upp í ham- borgara og þaðan upp í stórsteikur. Síðan erum við að sjálfsögðu með fjölbreytta sjávar- rétti, humarbrauð, sjávarréttapasta, léttasaltaðan þorskhnakka og bleikju, svo eitt- hvað sé nefnt,“ segir Hilmar, en auk þessa má nefna vegan-rétti. Veglegt Bröns-hlaðborð á laugardögum og sunnudögum frá kl. 11 til 15 er stór þáttur í starfsemi staðarins og mælist afar vel fyrir. Óhætt er að segja að verðlagi sé stillt í hóf á Kryddi, sérstaklega miðað við gæðastig matreiðslunnar og hráefnisins. Verð á drykkjum er síðan sérstaklega eftirtektarvert. „Við erum með mjög lágt verð á bjór og allir kok- teilar eru á 1.500 krónur sem er um 1.000 kr. lægra en gangverð. Svo er Happy hour alla daga vikunnar frá kl. 16 til 18 og þá kosta tveir bjórar 1.000 krónur samtals.“ Nánari upplýsingar eru á vefsíð- unni http://www.kryddveitingahus.is/. Þar er líka hægt að ganga frá pöntun á borði. Hilmar mælir með þeirri leið en hún er þó ekkert skilyrði. „Við vísum engum frá og ef það er ekki laust borð er fínt að bíða hérna á huggu- legu sófasvæðinu og fá sér fordrykk á meðan beðið er.“ Hafnfirðingar og fjölmargir aðrir eiga góðar stundir í vændum á Krydd veitingahúsi. Veitingastaðir „Þetta er staðurinn sem okkur dreymdi alltaf um“ Krydd Er Nýr VEiTiNGaSTaður Í HJarTa HafNarfJarðar:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.