Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2018, Blaðsíða 69
KYNNING
Í tilefni HM bjóða Heimilistæki og Philips upp á frábært kaupaukatil-boð á völdum 65“ og 75“ tækjum
af nýjustu gerð en með þeim fylgir
32“ sjónvarp frítt.
Nýjasta kynslóð Philips sjónvarpa
hafa nýtt og bætt viðmót með Android
6.0 stýrikerfi sem er einfaldara og not-
endavænna en áður svo sjónvarps-
upplifunin verður áreynslulaus.
Með þriggja hliða Ambilight bak-
lýsingu aðlagast augað skjánum
betur sem eykur þægindi við áhorf
og dregur úr álagi á augun. Að auki
lítur Ambilight 3 baklýsingin frábær-
lega út, ljósin eru marglit en mild í
takt við myndina á skjánum og spila
með myndinni. Þau lýsa upp veggina í
kringum sjónvarpið svo auðveldara er
að sökkva sér í sjónvarpsefnið.
Nýjasta kynslóð Philips sjón-
varpa eru afar stílhrein með þunn-
um ramma svo þau eru flott viðbót
við rýmið en draga ekki að sér alla
athyglina þegar slökkt er á þeim.
Þau hafa auk þess öll helstu nú-
tímaþægindi, frábær myndgæði með
P5 Perfect Picture Engine mynd-
vinnslu og HDR Plus. Einnig glæsilegt
hljóðkerfi DTS HD Premium Sound og
hægt er að horfa á Netflix í 4K. Við
tækin má tengja öll helstu viðbótar-
tæki, HDMI, USB og fleiri ómissandi
tengimöguleikar.
P5 Perfect Picture Engine mynd-
vinnslan eykur myndgæði svo um
munar. Litirnir verða bjartari og
smáatriði fá nýja dýpt. Litaflóran
verður margslungnari á meðan
húðtónar verða náttúrulegri. Einnig
eykur P5 skerpuna þannig að hvert
smáatriði vekur athygli auk þess að
hreyfingin á skjánum verður mýkri og
þú missir aldrei af boltanum sama
hversu hraður leikurinn
er. HDR Plus tæknin
endurskilgreinir síðan
sjónvarpsskemmtun
með framúrskarandi
myndvinnslu. Myndin
á skjánum lifn-
ar við og birtist
eins og skapari
þess ætlaði. Allt
þetta veldur
bjartari litum,
meiri skerpu og
breiðari litaflóru
á skjánum.
Nýjasta kynslóð Philips sjónvarpa
hefur enn fremur Quad Core ör-
gjörva en þegar hann mætir Android
stýrirkerfinu verður leikjaupplifunin
enn betri. Hraði, snerpa og skemmtun
eru það sem fæst með samspili Quad
Core örgjörvans og Android stýrikerf-
isins.
DTS Premium hljóðkerfið sér til
þess að ekkert fari framhjá þér með
djúpum bassa og kristaltærum sam-
tölum svo kvikmyndaupplifunin verður
umlykjandi.
HM tilboðin í Heimilistækjum eru
kjörið tækifæri til þess að endurnýja
sjónvarpið á heimilinu áður en HM
hefst svo öll fjölskyldan geti stutt
sitt lið saman og séð nákvæmlega
hvað fer fram á vellinum á meðan á
leiknum stendur. Philips 32“ sjónvarp
fylgir með völdum 65“ og 75“ Phil-
ips tækjum af nýjustu gerð, en 32“
sjónvarpið er nett og létt svo það er
tilvalið í eldhúsið, sumarbústaðinn
eða barnaherbergið.
Sjónvörpin er hægt að skoða í
Heimilistækjum Suðurlandsbraut 26
þar sem þú færð faglega ráðgjöf við
valið á rétta sjónvarpinu fyrir þig og
fjölskylduna.
Sjá nánar á vefsíðu Heimilistækja
HM tilboð Philips
og Heimilistækja